Dalsás 8B
01-0304 · 221 Hafnarfirði



10 dagar á sölu
79.900.000 kr
784.872 kr/m²
Falleg og vel með farin rúmgóð 3ja herbergja íbúð með sér inngang bæði í forstofuna og þvottahús á efstu hæð í litlu fjölbýli. Frábært útsýni er úr íbúðinni yfir höfðuborgarsvæðið og víðar. Eignin er alls 101,8 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 93,2 fm og sér geymsla á jarðhæð 8,6 fm. Tvennar svalir, 6 fm í norðurátt og 19 fm yfirbyggðar svalir í suðurátt.
Forstofa með flísum á gólfi og skápum. Hol/gangur með parket á gólfi. Stofan er með parket á gólfi, útg. út á norður svalir, fallegt útsýni. Eldhúsið er opið í stofuna, parket á gólfi, helluborð, vifta, ofn í vinnuhæð, stæði f. uppþv. vél. Tvö herbergi með parket á gólfi og skápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, baðkar, sturta, innrétting. Þvottahús með flísum á gólfi og innrétting, innangengt í þvottahús og einnig er sér inngangur. Geymsla á jarðhæð. Hjóla-og vagnageymsla. Stutt á göngu-og hjólastíga sem liggja út í náttúruna og fleiri áhugaverða staði. Skipti á stærri eign kemur til greina. Sameiginleg rafhleðslustöð fyrir stigaganginn hjá Dalsás 8
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




























