Bogatröð 25
01-0101 · 262 Reykjanesbæ



312 dagar á sölu
112.000.000 kr
229.508 kr/m²
Sunna fasteignasala ehf. og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna gott iðnaðarhúsnæði að Bogatröð 25, 262 Reykjanesbæ.
Eignin er 488 fm að stærð en um er að ræða vel hirt iðnaðarhúsnæði sem var byggt árið 1960. Í eigninni er milliloft sem er um 130 fm. Lóðin er 1520 fm. Góð aðkoma og bílastæði.
Tvær innkeyrsluhurðir eru á húsinu en þær eru um 4,5 m hæð og eru í báðum endum. Mögulegt er að keyra í gegn.
Eignin er í útleigu. Góður ótímabundinn leigusamningur sem bæði mætti halda sér eða segja upp, ef vilji er fyrir því.
Í húsinu er stór opinn salur, salernisaðstaða, snyrtileg kaffistofa/skrifstofuaðstaða ásamt sér vinnurými.
Framkvæmdir og viðhald:
Árið 2010 var byggingin yfirfarin að innan og rafmagni breytt.
Árið 2012 var byggingin máluð að utan, bæði þak og veggir.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



