HÚSASJÁ

Hnoðravellir 44

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

209 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

616 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



391 dagar á sölu

sell

152.700.000 kr

730.622 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða bjart og fallegt 209 fm einbýli á einni hæð með bílskúr. Húsið stendur í enda á botnlanga og því engin umferð fram hjá húsinu. Innangengt er úr bílskúr í íbúðarrými. Svefnhbergin eru fjögur og 2 baðherbergi. Búið er að setja upp hurð út í garðinn.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa/gangur er með flísar á gólfi ásamt upphengi og skápar í enda gangs.

Stofa er rúmgóð með flísum á gólfi, þar á eftir að bæta hurð út í garðinn.

Eldhús er með flísum á gólfi, viðarinnréttingu og flísum á milli efri og neðri skápa.

Svefnherbergin eru fjögur og eru með plastparketi á gólfum ásamt skápum í öllum herbergjum og rúmgóðu fataherbergi í aðalsvefnherbergi.

Baðherbergin eru tvö og er aðalbaðherbergi með flísum í hólf og gólf, stóru hornbaðkari, upphengt wc, handklæðaofn, tveir vaskar og skúffur undir þeim, svo er gluggi og opnanlegt fag. Gestabaðherbergi er með flísum á gólfi, fíbó plötum á veggjum, upphengt wc, handklæðaofn, skúffur undir vask og gluggi með opnanlegu fagi.

Þvottahús er með flísum á gólfi og þar er líka sturtuklefi.

Geymsla er inn af bílskúr

Bílskúr er með steyptu og máluðu gólfi, hillum og þar er búið að koma fyrir lítilli eldhúsinnréttingu.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Hnoðravellir 44

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð