HÚSASJÁ

Litli-Klofi

01-0101 · 851 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

86 m²

Stærð

2005

Byggingarár

5000 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



94 dagar á sölu

sell

50.900.000 kr

589.120 kr/m²

RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna fallegt sumarhús á eftirsóttum stað við Litla-Klofa lóð.11 í Holta og landsveit á suðurlandi. Húsið sjálft er á 5.000 fm eignarlóð sem nær nánast niður að læk. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 86,4 fm og þar af gestahús 15,6 fm. Auk þess er 20 ft geymsligámur inn í gróðri svo fer lítið fyrir honum. Einnig er búið að gera góðan körfuboltavöll á lóðinni ásamt því að það er heitur pottur og niðurgrafið trampólín. Húsið er frábærlega staðsett á þessu fallega svæði. Góð staðsetning u.þ.b. 115 km frá Reykjavík. Hitaveita er á svæðinu. Einnig er sameiginlegur fótboltavöllur á svæðinu. Fallegt útsýni er á svæðinu til fjalla og eru bæði Hekla og Búrfell í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með parketi á gólfi. Gott pláss fyrir fataskáp og/eða fatahengi.

Svefnherbergin eru tvö og eru rúmgóð með góðum gluggum. Parket á gólfi.

Baðherbergið er með góðum sturtuklefa, handlaug með skáp undir og salerni. Opnanlegur gluggi.

Eldhúsið er með fallegri dökkri innréttingu með helluborði, bakarofni, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Viðarborðplata er á eldhúsi. Gott vinnu- og skápapláss.

Borðstofa/Stofa er samliggjandi opið rými við eldhús. Mjög bjart og rúmgott. Þaðan er útgengt út á góða verönd.

Svefnloft er rúmgott með glugga. Stigi hlið við eldhús er upp á svefnloftið.

Veröndin er stór og nær nánast hringinn í kringum húsið.

Þvottahús/baðherbergi er einnig bakatil við hús þar sem heiti potturinn er á verönd. Flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél, salerni, handlaug og sturtuklefi. Gott geymslupláss.

Gestahús er um 15,6 fm og er skráð sem geymsla. Þar er rafmagnskynding og parket á gólfi.

Gámur er á lóðinni nánast falin í gróðri svo fer ekki mikið fyrir honum. Hann er 20 ft og er notuð sem köld geymsla.

Lóðin er afar snyrtileg og er með steyptum körfuboltavelli og niðurgröfnu trampólíni svo eitthvað sé nefnt.

Nánari upplýsingar veita:

Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363

Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8811

Kort af Litli-Klofi

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33