Beykidalur 6
01-0102 · 260 Reykjanesbæ



19 dagar á sölu
67.900.000 kr
584.841 kr/m²
PRODOMO fasteignasala kynnir góða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð ásamt bílskúr að Beykidal 6 í Njarðvík.
Íbúð merkt 102.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús með nýlegu parketi á gólfi. Stílhrein innrétting, öll tæki endurnýjuð nýlega nema uppþvottavél.Blöndunartæki nýleg.
Stofa með nýlegu parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á hellu lagða verönd með nýlegum skjólveggjum.
Herbergin tvö eru með nýlegu parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi allt nýlega tekið í gegn með flísum á gólfi og veggjum. Innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu.
Þvottahús/geymsla með flísum á gólfi. Góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur við innréttingu og hillur á veggjum.
Merkt bílastæði beint við inngang íbúðar fylgir eigninni og svo annað bílastæði við bílskúr. Einnig er sameiginleg hjóla / vagnageymsla.
Bílskúr hefur flísar á gólfi, rafmagnsopnun og heitt og kalt vatn.
** Baðherbergi allt nýlega endurnýjað.
** Allt parket íbúðar nýlegt.
** Blöndunnaræki nýleg í eldhúsi ásamt flestum eldhús tækjum.
** Nýlegir skjólveggir á verönd.
** Bílskúr 30,5 fm
Virkilega snyrtileg eign á jarðhæð með sérinngang, verönd og bílskúr.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

























