HÚSASJÁ

Úlfarsbraut 54

03-0101 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

182 m²

Stærð

3

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2015

Byggingarár

1008 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



8 dagar á sölu

sell

147.900.000 kr

810.855 kr/m²

Katla, löggiltur fasteignasali, og Háborg fasteignasala kynna:

Fallegt og vel skipulagt 6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Úlfarsbraut 54 í Reykjavík.

Um er að ræða rúmgóða og bjarta fjölskyldueign á barnvænum stað í Úlfarsárdal. Húsið er byggt árið 2015 og er alls 182,4 fm, þar af 26,0 fm innbyggður bílskúr. Eignin er vel skipulögð, með aukna lofthæð, gólfhita á neðri hæð og innfellda lýsingu sem setur fallegan svip á rýmin.

Neðri hæð myndar bjart og notalegt alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu í opnu rými. Eldhús er með fallegri innréttingu og gott skápapláss. Útgengi er úr stofu á stóra afgirtða verönd til suðurs sem nýtist einstaklega vel til útiveru. Þar er einnig heitur pottur og er veröndin tengd bakgarði á skemmtilegan hátt.

Efri hæð er svefnálma fjölskyldunnar og þar eru fimm svefnherbergi, öll á efri hæð, ásamt sjónvarpsholi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengi er úr einu svefnherbergjanna á svalir til suðurs sem snúa inn í bakgarð.

Lóðin er viðhaldslítil. Fyrir framan hús er hellulögð stétt með snjóbræðslu og innangengt er í bílskúr úr forstofu. Afgirt verönd til suðurs með heitum potti – einstaklega skemmtilegt útisvæði fyrir fjölskyldu og gesti.

Staðsetning eignarinnar er frábær fyrir fjölskyldur; stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun og þjónustu. Íþróttasvæði og sundlaug eru í næsta nágrenni auk þess sem útivistarsvæði Úlfarsárdalsins er í göngufæri.

Skráð stærð samkvæmt Þjóðskrá Íslands: 182,4 fm, þar af bílskúr 26,0 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir: Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali – 822 1661 – katla@haborg.is

Nánari lýsing

Neðri hæð

Forstofa / anddyri með flísum á gólfi og fataskáp. Innangengt í bílskúr.

Baðherbergi I er flísalagt í gólf og veggi, með upphengdu salerni, sturtu, innréttingu við vask með spegli og handklæðaofni.

Eldhús er með harðparketi á gólfi og fallegri innréttingu. Gott skápapláss. Eldhús er opið við stofu og borðstofu. Innfelld lýsing í loftum.

Stofa / borðstofa mynda bjart alrými með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Útgengi á stóra afgirtða verönd í bakgarði.

Verönd / bakgarður Afgirt verönd til suðurs með heitum potti – einstaklega skemmtilegt útisvæði fyrir fjölskyldu og gesti.

Bílskúr Innangengur bílskúr, 26,0 fm, málaður með epoxy.

Efri hæð

Gengið er upp stiga á efri hæð.

Sjónvarpshol sem hentar vel sem fjölskyldurými.

Á efri hæð eru fimm svefnherbergi:

Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og aðgengi í fataherbergi.

Fataherbergi (rými sem áður var skráð sem geymsla) er í dag nýtt sem fataherbergi, gengið beint úr hjónaherbergi.

Svefnherbergi II–V eru fjögur svefnherbergi með harðparketi. Eitt herbergi er með útgengi á svalir til suðurs.

Baðherbergi II er flísalagt í gólf og veggi. Baðkar með sturtutækjum, upphengt salerni, innrétting við vask og útloftun.

Þvottaherbergi með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun.

Svalir til suðurs inn í bakgarð.

Kort af Úlfarsbraut 54

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð