HÚSASJÁ

Úlfarsbraut 52

02-0101 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

182 m²

Stærð

4

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2015

Byggingarár

1008 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



192 dagar á sölu

sell

147.900.000 kr

810.855 kr/m²

Nýtt á skrá! Úlfarsbraut 52 Reykjavík - Frábær fjölskyldueign með fimm svefnherbergjum!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt og bjart 6-7 herbergja raðhús á barnvænum stað við Úlfarsbraut 52 í Reykjavík. Húsið, sem er byggt árið 2015, er alls 182,4 fermetrar að stærð og þar af 26,0 fermetra innbyggður bílskúr. Húsið er vel skipulagt, með aukinni lofthæð á báðum hæðum og með stórri afgirtri verönd til suðurs. Útgengi er á verönd/bakgarð frá stofu og auk þess er útgengi úr einu svefnherbergi efri hæðar á svalir með fallegu útsýni til suðurs.

Fimm svefnherbergi er í húsinu og tvö baðherbergi sem eru á sitthvorri hæðinni. Fallegar innréttingar frá Fríform í eldhúsi. Eldhús er opið við stofu/borðstofu neðri hæðar. Sjónvarpshol er staðsett á efri hæð. Gólfhitakerfi er á neðri hæð hússins og innfelld lýsing í loftum. Innangengt er í snyrtilegan bílskúr með epoxy gólfi.

Lóðin er falleg og viðhaldslítil. Hellulögð stétt með snjóbræðslu fyrir framan hús og rafhleðslustöð. Glæsileg afgirt verönd til suðurs með lögnum fyrir heitum potti. Staðsetning hússins er afar góð í rólegri barnvænni götu.

Um er að ræða frábæra fjölskyldueign í þessu vinsæla hverfi við Úlfársárdalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla og grunnskóla. Íþróttasvæði, sundlaug í næsta nágrenni. Frábærir útvistamöguleikar þar sem húsin standa við Úlfársárdalinn.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum.

Baðherbergi I: Er flísalagt í gólf og veggi. Upphengt salerni, sturta, innrétting við vask með speglaskáp og handklæðaofn.

Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá Fríform með góðu skápaplássi og eldhúseyju. Innfelld lýsing í loftum. Vönduð AEG eldhústæki (kæliskápur, frystiskápur, bakaraofn, örbylgjuofn, uppþvottavél, spansuðu helluborð og vifta). Eldhús er opið við stofu og borðstofu.

Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á stóra afgirta verönd í bakgarði.

Verönd: Er stór og afgirt og snýr til suðurs. Lagnir fyrir heitum potti til staðar.

Bílskúr: Er 26,0 fermetrar að stærð og mjög snyrtilegur. Inngengt frá forstofu og epoxy gólf. Rafhleðslustöð fyrir utan bílskúrshurð.

Efri hæð: Gengið upp fallegan stiga með stál handriði.

Sjónvarpshol: Með harðparketi á gólfi og aukinni lofthæð. Innfelld lýsing í loftum.

Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs. Aukin lofthæð, góðir skápar og innfelld lýsing í loftum.

Fataherbergi/geymsla: Með harðparketi á gólfi og opnun skápum. Aukin lofthæð og útloftun

Baðherbergi II: Með flísum á gólfum og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og glerþili. Innrétting við vask, upphengt salerni og útloftun.

Þvottaherbergi: Með harðparketi á gólfi, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og útloftun.

Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, aukinni lofthæð og glugga til suðurs.

Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, aukinni lofthæð og gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi á svalir til suðurs með fallegu útsýni.

Svalir: Snúa inn í bakgarð hússins til suðurs. Fallegt útsýni yfir dalinn og víðar.

Svefnherbergi IV: Með harðparketi á gólfi, aukinni lofthæð og glugga til suðurs.

Svefnherbergi V: Með harðparketi á gólfi og glugga til norðurs.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

Kort af Úlfarsbraut 52

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36