HÚSASJÁ

Hlíðarás 41

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
46 myndir

370 m²

Stærð

5

Herbergi

7

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2008

Byggingarár

681 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur

Auka íbúð



240 dagar á sölu

sell

199.900.000 kr

540.562 kr/m²

Hlíðarás 41 - Skemmtilegt einbýlishús í Áslandinu, Hafnarfirði. Um er að ræða gott fjölskylduhús með sjö herbergjum, þar sem möguleiki væri á að útbúa tvær auka íbúðir,

húsið er skráð 369,8 fm að stærð samkvæmt fmr, rúmgott steypt bílaplan. Einstakt útsýni yfir höfuðborgina, Heiðmörk og Bjáfjöll, leikskóli og skóli í göngufæri.

Húsið var málað og sprunguviðgert núna í sumar 2025 að sögn seljanda.

Skipting eignar:

Neðri hæðin - Forstofa, gangur/hol, salerni, þrjú stór herbergi (tvö 20 fm og 32 fm samkvæmt teikningum), geymsla. bílskúr.

Efri hæðin - Sjónvarpshol, eldhús, borðstofa, stofa, gangur/hol, þrjú herbergi, hjónasvíta, fataherbergi, baðherbergi, þvottahús, salerni.

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum forstofuskápum, gangur/hol, salerni með sturtuklefa, geymsla, tvö afar rúmgóð sirka 20 fm herbergi,

gengið er upp fallegan bjartan stiga sem tengir hæðir hússins saman, á pallinum er sjónvarpshol, af stiga pallinum er síðan útgengt út í bakgarð hússins,

á efri hæðinni er afar bjart og skemmtilegt alrými sem saman stendur af stofu, borðstofu og eldhúsi.

Eldhúsið er rúmgott með góðu skápa og vinnuplássi, tvöfaldur ísskápur, tveir bakarofnar og margt fleira sem nýtist vel í þessufallega rými, svefnherbergis gangur með þremur herbergjum,

hjónasvíta með fataherbergi og salerni, flísalagt baðherbergi með vask, innréttingu, sturtu, baðkari, upphengdu klósetti og handklæðaofni,

þvottaherbergi með góðu skápaplássi og útgengt er úr. Garðurinn er með stéttum, stóru bílaplani, beðum og rúmgóðum palli bakvið húsið,

pallurinn er skjólgóður með heitum potti og góðri aðstöðu fyrir grillið þar sem þarkskyggni hússins nær út á pallinn sem myndar skjól fyrir rigningu.

Um er að ræða einstaklega vel skipulagt einbýlishús á þessum vinsæla stað í Áslandinu, Hafnarfirði húsið er vel staðsett þar sem stutt er í fallegar gönguleiðir í einstakri nátturu.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Stefán Rafn Sigurmannsson, löggiltur fasteignasali, s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Hlíðarás 41

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu