HÚSASJÁ

Úlfarsbraut 98

01-0101 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
48 myndir

132 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2010

Byggingarár

558 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



18 dagar á sölu

sell

102.500.000 kr

775.927 kr/m²

Sigríður Rut, lgfs. gsm. 699-4610 og Fasteignasalan TORG  kynna: Fallega, bjarta og vel skipulagða, 4ra herbergja  íbúð  í litlu og snyrtilegu 6 íbúða fjölbýli, sem staðsett er í suðurhlíðum  Úlfarsárdals þar sem stutt er í náttúru, útivistarsvæði, sundlaug og helstu þjónustu.

Íbúðinni fylgir rúmgott stæði í bílskýli með sér innkeyrslu . Íbúðin er skráð samkvæmt Þjóðskrá  samtals 132,1 fm með sér geymslunni sem er skráð 11,6 fm með góðum glugga. Á gólfum eru fallegar flísar sem gefa rýmunum vandað og hlýlegt yfirbragð. Fallegar og vandaðar innréttingar prýða eldhús og baðherbergi og skapa nútímalegt og stílhreint heildarútlit.

Úr stofu er gengið út á rúmgóðan pall, sem býður upp á frábæra aðstöðu til útiveru og afslöppunar. Umhverfið er einstaklega gott fyrir útivistarfólk, með náttúru og gönguleiðum í næsta nágrenni.

Eignin er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem leikskólar, skólar og þjónusta eru í þægilegu göngufæri. Allar nánari veitir Sigríður Rut, Stanleysdóttir  löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is

Lítið fjölbýli – aðeins 6 eignir

Allir íverustaðir á einni hæð

Óhindrað útsýni

Hellulögð suðurverönd og pallur

Flísar á gólfum

Sér þvottahús innan íbúðar

Stæði í bílskýli með hita og rafmagni

Róleg botngata og nálægð við náttúru

Skipulag eignarinnar
Eignin skiptist í: forstofu, gang, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi (3. svefnherbergi er sýnt á teikningu), rúmgóða geymslu í sameign og bílskýli.
Gengið er inn af plani á götuhæð og niður eina hæð.


Forstofa: Flísalögð, með fataskápum.


Hol: Flísalagt. Tengir saman alrými annars vegar og svefnrými og baðherbergi hins vegar.


Eldhús / borðstofa / stofa: Bjart og opið alrými með stórum gluggum og fallegu útsýni.


Eldhús með hvítri L-laga innréttingu, góðri eldhúseyju með granítborðplötu, gashellum og vönduðum tækjum.

Stofa er flísalögð með útgengi bæði út á hellulagða suðurverönd og út á pall.


Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi í dag, annað með fataskápum á heilum vegg. Samkvæmt teikningum er mögulegt að útbúa þriðja svefnherbergið í hluta stofurýmis.


Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt. Hvít vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta og baðkar.


Þvottahús: Rúmgott með innréttingu fyrir tækin og gott skápapláss, vaskur, flísar á gólfi.


Geymsla:  Sér geymsla í sameign með hornglugga.


Bílageymsla: Sér merkt stæði í lokaðri bílageymslu, hleðsla fyrir rafmagnsbíla.


Virkilega falleg eign á frábærum stað í Úlfarsárdal þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, frístundaheimili og menningarmiðstöð sem hefur að geyma almenningsbókasafn, innisundlaug og íþróttahús ásamt útisundlaug. Á svæðinu er knattspyrnuvöllur þar sem félagið Fram er með æfingaaðstöðu og áhorfendastúku. Stutt í fallega náttúru og eina af útivistaperlum höfuðborgarsvæðisins.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG  bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Úlfarsbraut 98

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð