HÚSASJÁ

Brákarbraut 8

01-0203 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

163 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

937 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

77.900.000 kr

478.795 kr/m²

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:

Brákarbraut 8, 310 Borgarnes íb. 203. Um er að ræða glæsilega 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum í 3ja hæða húsi, byggt 2007 á vinsælum stað í neðri bænum.

Eignin er samtals 162.7 fm að stærð skv. skráningu HMS. Á neðri hæð sem er 91,9 fm að stærð er anddyri, alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu, snyrting og svefnherbergi. Á efri hæð sem er 68.3 fm að stærð eru 3 herbergi (eitt skráð sem geymsla), baðherbergi, þvottahús og leikrými / sjónvarpshol.

Eignin er laus til afhendingar!

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Gengið er inn í anddyri með flísum á gólfi og fataskáp. Úr anddyri er gengið í alrými sem samanstendur af eldhúsi og rúmgóðri stofu, parket á gólfi. Gengið er út á svalir úr stofu. Lítil snyrting er á neðri hæð flísalögð í hólf og gólf með upphengdu salerni og vaski. Rúmgott svefnherbergi er á hæðinni með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.

Efri Hæð:

Gengið er upp parketlagðan stiga á efri hæð. Hæðin skiptist í svefnherbergisgang þar sem eru 3 björt herbergi öll með fataskáp og þakgluggum og leikrými / sjónvarpshol með útgengi á svalir, þar innaf er baðherbergi og þvottahús. Parket er á öllum gólfum efri hæðar fyrir utan votrými en þar er flísalagt í hólf og gólf.

Rúmgóð og björt eign með góðu útsýni á vinsælum stað í neðri hluta Borgarness.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.

Kort af Brákarbraut 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31
Brákarbraut 8, 01-0203 | Húsasjá