HÚSASJÁ

Eyravegur 38

01-0201 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

74 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

2412 m²

Lóð

Garður

Lyfta



21 dagar á sölu

sell

49.990.000 kr

680.136 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu;

Eyravegur 38 íbúð 201

Vandaða og mjög vel skipulagða íbúð í fallegu og vel staðsettu lyftuhúsi á Selfossi.

Húsið er staðsteypt, steinað að utan, þak er flatt klætt með tvöföldu lagi af pappa. Gluggar eru ál/tré. Lóðin er öll malbikuð og frágengin. Sameign er snyrtileg og fullfrágengin. Sameiginleg hjól/vagnageymsla er á fyrstu hæð, sameign er öll flísalögð sem og stigahús á milli hæða. Lyfta er í húsinu.

Íbúðin er alls 73,5m2 að stærð og skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús sem eru í opnu og rúmgóðu rými. Í stofu er útgengt á ca. 7m2 svalir.

Anddyri er með flísum á gólfi og fataskáp.

Stofa og eldhús eru í sameiginlegu rými.

Smekkleg eldhúsinnrétting með fínu skápaplássi og innbyggðri uppþvottavél. Parket er á gólfi.

Útgengt er út á svalir úr stofu.

Baðherbergi er flísalagt með góðri gólfsturtu og innréttingu. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi og pláss fyrir þurrkara.

Tvö svefnherbergi eru í eigninni og skápar í þeim báðum.

Malbikuð bílastæði og  stutt er í matvöruverslun og leikskóla.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga

arborgir@arborgir.is

Kort af Eyravegur 38

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð