Hnoðravellir 21
01-0101 · 221 Hafnarfirði



31 dagar á sölu
137.900.000 kr
645.902 kr/m²
Glæsilegt 213,5 fm endaraðhús með bílskúr við Hnoðravelli 21 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að neðri hæðin er 126,8 fm, efri hæðin 30,4 fm og bílskúr með millilofti 56,3 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Neðri hæð: Forstofa með skápum. Stofa, borðstofa og eldhús í björtu og rúmgóðu alrými þar sem hátt er til lofts. Í eldhúsi er viðarinnrétting með dökkgrárri borðplötu, ofn í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél, helluðborð með viftu yfir og stæði fyrir tvo ísskápa/ísskáp og frysti. Baðherbergi með viðarinnréttingu, vegghengt salerni, handklæðaofn og walk-in sturta. Þvottaherbergi með vinnuborði, vaski og efri skápum, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Þrjú svefnherbergi, þar af tvö með skápum. Svartur stálstigi úr holi upp á efri hæð.
Efri hæð: Búið er að skipta efri hæðinni í tvö svefnherbergi, setustofu/lítið sjónvarpshol og salerni með viðarinnréttingu.
Bílskúr: Innangengt úr forstofu, gólfflötur 38 fm og skráð milliloft 18,3 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Gólfefni hússins eru flísar og harðparket/p.parket.
Verönd með nýlegum stórum palli að framan og grasfleti/hellum að aftan.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir


































