Klettagljúfur 23
01-0101 · 816 Ölfusi



515 dagar á sölu
87.700.000 kr
477.669 kr/m²
OPIÐ HÚS - KLETTAGLJÚFUR 23 - ÞRIÐJUDAGINN 3. MARS - FRÁ KL.17.00 - 17.30.
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða opna og skemmtilega 183,4 fm 5 herbergja neðri hæð í fallegu húsi með vönduðum innréttingum og innfeldri lýsingu í loftum, öll innanhússhönnun var í höndum Rut Káradóttur. Húsið er steinað að utan og þakkantur klæddur með álklæðningu. Húsið er hitað með gólfhita- og loftræstikerfi. Íbúð er á jarðhæð með sér verandir og bílastæði tilheyra eigninni. Mikið óhindrað útsýni er úr eigninni til suðurs í átt að Hveragerði ásamt fallegri náttúru í nágrenninu.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is og
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flotað gólf með fataskápum og upphengi.
Hol er með flotuðu gólfi
Stofa er rúmgóð og glugga í tvær áttir og flotað gólf. Stofa og eldhús mynda skemmtilegt alrými.
Eldhús er með flotað gólf, hvítri innréttingu og skápum upp í loft ásamt fallegri eyju. Úr eldhúsi er útgengt á snyrtilega verönd
Svefnherbergin eru 4 og eru og eru með flotuðu gólfi og fataskápum.
Baðherbergin eru 2 og er aðalbaðherbergi með flotuðu gólfi, flísum á veggjum, vönduð innrétting í kringum vask og opin sturta og upphengt wc. Gestabaðherbergi er með flotað gólf, flísar á hluta veggja ásamt speglavegg, upphengt wc og skápur undir vask.
Þvottaherbergi er með flotað gólf, gott vinnuborð og vaskur, skúffur og hillur ásamt því að hægt er að hengja upp þvott.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
































