HÚSASJÁ

Álmskógar 7

01-0101 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

130 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

441 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



3 dagar á sölu

sell

95.000.000 kr

731.332 kr/m²

Domusnova Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna:

Endaraðhús, Álmskógar 7, Akranesi.      SKIPTI MÖGULEG Á ÓDÝRARI EIGN.

Bjart og afar vel skipulagt 104,4 fm raðhús  á einni hæð með 2-3 svefnherbergjum og 25,5 fm bílskúr.  Húsið er staðsett á rólegum og vinsælum stað skammt frá m.a golfvelli og útivistarsvæði.

Steypt bílaplan. Steypt verönd við aðalinngang.

Lýsing eignar:

Forstofa, flísar á gólfi og stór skápur.

Samfellt harðparket á stofu, eldhúsi, báðum herbergjum gangi og geymslu / vinnuherb.  Dyr útá steypta verönd frá stofu (steyptur skjólveggur).

Eldhús, góð innrétting, flísar á milli skápa, keramik helluborð, vifta og ofn,  (ísskápur  fylgir)

Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, sturta, rúmgóð innrétting, handklæðaofn: Dyr úr baðherbergi útá timburverönd með timbur skjólborðum, heitur pottur með stýringu.

Stofa, innréttingar fylgja.

Tvö svefnherbergi, stór fataskápur í öðru.

Geymsla/ vinnuherbergi, parket á gólfi.

Þvottaherbergi, flísar á gólfi, hvítar innréttingar, vaskborð og góðir skápar þvottavél og þurrkari í vinnuhæð, dyr útá verönd.

Bílskúr, flísar á gólfi, geymsluloft, fjarstýrður opnari, göngudyr.  Hlaupakefli fylgir.

Annað:  Gólfihitalögn er í öllum gólfum.  Hitalögn í bílaplani að hluta (sem nemur bíllengd) . Allar innréttingar (nema í þvottahúsi og bílskúr) eru úr hlyn, eikar innihurðir. Garður með steyptum kanti meðfram götuhlið að verönd, afgirtur.

Nánari upplýsingar veitir:

Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali / s.846 4144 / soffia@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:

Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Álmskógar 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu