Grímsholt 10
01-0101 · 250 Suðurnesjabæ



20 dagar á sölu
77.500.000 kr
464.628 kr/m²
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Grímsholt 10, 250 Suðurnesjabæ
Um er að ræða 4ja herbergja nýlegt parhús 166,8 fm. þar af 26 fm. innbyggður bílskúr.
Eignin er staðsett á góðum stað í Garðinum, barnvænt hverfi og stutt er í leik- og grunnskóla auk sundmiðstöð, íþróttahús og matvöruverslun.
Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús með eyju, stofu, borðstofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og stóran sólpall/verönd.
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hol er rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, snyrtileg hvít innrétting, ljósaspegill, sturta og upphengt salerni.
Eldhús hefur parket á gólfi, stór eldhúseyja með helluborði og viftu, góð hvít eldhúsinnrétting með uppþvottavél og innbyggðum ofn og örbylgjuofn frá AEG.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi, í stofunni eru stórir gluggar sem gera hana bjarta og fallega.
Borðstofa hefur parket á gólfi, björt og rúmgóð, þar er svalahurð út á afgirtan pall.
Svefnherbergin eru 3 talsins og öll parketlögð, hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskáp, þar er útengt út á afgirtan pall.
Þvottahús er í enda holt með flísum á gólfi, stór innrétting og hurð inn í bílgeymslu.
Bílskúrinn er rúmgóður, með flísum gólfi, gönguhurð og aksturshurð með sjálfvirkum opnara.
Lóð er með grasi og stór afgirt verönd með tengi fyrir heitan pott.
Aðkoman er góð, stórt steypt bílaplan.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á netfangið es@es.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















