Sólbakki 27
01-0105 · 310 Borgarnesi



18 dagar á sölu
49.900.000 kr
425.768 kr/m²
Trausti fasteignasala kynnir iðnaðarbil við Sólbakka í Borgarnesi. Um er að ræða húsalengju með 7 atvinnuhúsnæðisbilum
Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 117,2 fm.
Nánari upplýsingar hjá Kristjáni í síma 867-3040 eða kristjan@trausti.is og Sólveigu í síma 869-4879 eða á solveig@trausti.is
Húsnæðið skiptist í neðri hæð sem er skráð 95,6 fm og efri hæð sem er skráð 21,6 fm skrifstofa sem hefur verið innréttuð sem lítil íbúð.
Nánar um eignina:
Neðri hæð:
Iðnaðarbil með lítilli innréttingu með vaski. Heitt og kalt vatn. Útgengt er í báðum endum bils. Hátt til lofts.
Efri hæð:
Herbergi/kaffistofa með eldhúskrók. Parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga. Sturta, vaskur og salerni. Dúkur á gólfi.
Stórt og gott geymslurými fyrir framan kaffistofu sem ekki eru inn í skráðri fm tölu.
Athugasemdir sem komu fram við skoðun:
Við byggingu þessara iðnaðarbila var ekki rétt gengið frá eldvörnum. Seljandi lét laga það núna í janúar að hluta þar sem settar voru gipsplötur upp við loftið og aðeins inn á loftið. Þessar lagfæringar er búið að gera í flestum bilunum í þessari lengju og snýst um brunahólfun.
Það á eftir að setja upp og tengja brunaslöngu, en það er búið að kaupa slönguna sjálfa. Þá á eftir að setja upp slökkvitæki.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita Kristján Baldursson Löggiltur Fasteignasali í síma 867-3040 eða kristjan@trausti.is eða Sólveig Regína Biard Löggiltur Fasteignasali í síma 869-4879 eða solveig@trausti.is Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna























