Bjarkardalur 33
01-0206 · 260 Reykjanesbæ



550 dagar á sölu
59.900.000 kr
475.397 kr/m²
** 3 HEBERGJA ÍBÚÐ (101,9FM2) ÁSAMT BÍLSKÚR (24,1FM2) samtals 126 fm2 **
LAUS VIÐ KAUPSAMNING
** Bókið skoðun hjá Dagrúnu Davíðsdóttir á dagrun@betristofan.is eða í síma 866-1763 **
Betri stofan fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasli kynna eignina Bjarkardal 33, 260 Reykjanesbæ.
Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á annari hæð í þriggja hæða fjölbýli ásamt bílskúr. Sér inngangur.
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum forstofuskáp. Tvö rúmgóð svefnherbergi sem eru með stórum fataskápum og parket á gólfum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting, upphengt salerni og stór sturta. Innaf baðherbergi er þvottahús. Opið er á milli eldhúss, borðstofu og stofu og útgengt út á suðursvalir frá hjónaherbergi. Eldhús með eikar innréttingu og eyju ásamt gufugleypi. Harðparket er á alrými íbúðarinnar sem og svefnherbergjum. Þvottahús/geymsla er innan íbúðar, einnig sérgeymsla á 1. hæð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð. Einnig fylgir góður bílskúr, stæði merkt íbúðinni ásamt sameiginlegum gestastæðum.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi. Forstofuskápur.
Alrými: Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi. Rúmgóður skápur, Parket á gólfi.
Baðherbergi: Innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, rúmgóð sturta með glerhurð. Flísalagt í hólf og gólf. Innaf baðherbergi er þvottaús/geymsla. Það er lokað af með rennihurð. Flísalegt.
Eldhús með stórri eikarinnréttingu og rúmgóðri eyju. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa erum samliggjandi. Parket á gólfi
Hjónaherbergi: Rúmgóðir skápar. Parket á gólfi. Gengið er út á suður svalir frá herbergi.
Geymsla á jarðhæð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er einnig á jarðhæð.
Bílskúr er með rafdrifinni hurð. Vaskur og opnanlegur gluggi.
Íbúðin er í göngufæri við nýja leik- og grunnskóla.
Stapaskóli er í göngufæri en þar er starfræktur leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð. Þar er einnig íþróttahús, sundlaug og bókasafn.
Stutt er í alla þjónustu.
Eignin Bjarkardalur 33 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 229-8758, birt stærð 126.0 fm.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















