HÚSASJÁ

Bjarkardalur 33

01-0101 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

99 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2009

Byggingarár

3675 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



365 dagar á sölu

sell

54.900.000 kr

555.106 kr/m²

SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í SÖLU: 98,9 fm, þriggja herbergja endaíbúð á jarðhæð með stóran sérafnotareit. Íbúðin skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottahúsi inn af þar sem baðkar hefur verið sett. Útgengt er á 32 fm sérafnotareit til suðurs frá hjónaherbergi. Sérmerkt stæði fylgir íbúð. Geymsla og sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign.  Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, búðir og samgöngur. Eignin getur verið laus eftir samkomulagi. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is

Nánari lýsing:

Anddyri er flísalagt, með fataskáp og millihurð inn í íbúð.

Eldhús, borðstofa og stofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými. Eldhús er með viðarlitaðri innréttingu og grárri borðplötu.

Hjónaherbergi er rúmgott og bjart, með viðarlituðum fataskápum. Útgengt er á sérafnotapall sem snýr til suðurs.

Barnaherbergi er með viðarlituðum fataskáp.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og með viðarlituðum skáp undir vasku, sturtu og upphengdu salerni. Gengið er inn á þvottaherbergi frá baðherbergi, þar sem sett hefur verið baðkar.

Sérgeymsla (7,3 fm) er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Sér bílastæði merkt íbúð við inngang.

Íbúðin er í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Bjarkardalur 33

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34