HÚSASJÁ

Lindargata 37

13-0201 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

95 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2010

Byggingarár

6989 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



141 dagar á sölu

sell

104.900.000 kr

1.110.053 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vandaða og glæsilega 3ja herbergja 94,5 fermetra íbúð á 2. hæð með rúmgóðum yfirbyggðum suðursvölum í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu í Skuggahverfinu í Reykjavík. Sér bílastæði fylgir með rafhleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins ásamt sér geymslu og hjólageymslu. Baðherbergi eignar er nýlega endurnýjað á smekklegan hátt og svalalokun var sett upp árið 2020.

Sameign hússins er einstaklega glæsileg með tveimur lyftum og setbekk. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, veitingahús og mannlíf miðborgarinnar.

Lýsing eignar:

Inngangur, fallegur, flísalagður og með setbekk.

Forstofa, parketlögð með innbyggðum fataskápum.

Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, gólfhiti, innrétting, handklæðaofn og flísalögð sturta með sturtugleri. Inn af baðherbergi er þvottaaðstaða sem í dag er nýtt sem fataherbergi.

Herbergi l, parketlagt.

Gangur, parketlagður.

Stofa / borðstofa, parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar yfirbyggðar svalir til suðurs með gólfklæðningu.

Eldhús, parketlagt og bjart, opið við stofu og með vönduðum hvítum og viðarinnréttingum með hvítri quarts borðplötu, rafmagnshelluborði, tengi fyrir uppþvottavél og ofni í vinnuhæð.

Herbergi ll, parketlagt og rúmgott. Fataskápar sem tilheyra herberginu eru til í geymslu.

Í kjallara hússins eru:

Sér bílastæði, sem er rúmgott og með tengi fyrir rafhleðslustöð. Stæðið er merkt 16Y.

Sérgeymsla, á jarðhæð, 8,2 fermetrar að stærð, máluð gólf og hillur.

Sameiginleg hjólageymsla, á jarðhæð og með útgengi á baklóð.

Húsið er einangrað að utan og klætt með flísum og er í góðu ástandi.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar, þaðan sem stutt er í iðandi mannlíf, veitingahús, afþreyingu, verslun og þjónustu.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er væntanlegum kaupendum því bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Lindargata 37

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28
Lindargata 37, 13-0201 | Húsasjá