HÚSASJÁ

Mánamörk 3

01-0101 · 810 Hveragerði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
6 myndir

59 m²

Stærð

1

Baðherbergi

2008

Byggingarár

3070 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



190 dagar á sölu

sell

44.900.000 kr

398.403 kr/m²

HELGAFELL fasteignasala kynnir tvö samliggjandi bil (endabil) að MÁNAMÖRK 3-5, BIL 1 og 14, 810 Hveragerði í einkasölu.

Húsnæðið skiptis í iðnaðarhúsnæði/verkstæði annars vegar og skrifstofu hins vegar. Möguleiki er á að komast á milli hluta, sameiginlegur inngangur er til suðurs, innkeyrsludyr eru til norðurs.

Húsið stendur á iðnaðar- og athafnalóð miðsvæðis í Hveragerði.

Um er að ræða tvö bil, mhl. 01.0101 fastanúmer 229-7581 skráð 59.2 m² að stærð og mhl. 01.0114 fastanúmer. 232.1134 skráð 53.5 m² samtals 112.7 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.

Áhvílandi vsk-kvöð er á eigninni og miðast söluverð eignar við yfirtöku á vsk-kvöð.

Skipulag eignar: Verkstæðisrými með salernisaðstöðu, íbúðarrými með alrými og baðherbergi.

Eignin var endurnýjuð að innan árið 2015 meðal annars ný gólfefni og innréttingar í íbúðar- skrifstofuhluta,

ásamt öllum lögnum; rafmagn og hiti og lýsing í báða hluta eignarinnar.

Nýleg bílskúrshurð u.þ.b. 4 ára gömul. Stærð hurðar er u.þ.b. breidd 4.8 metrar, hæð 4.8 metrar

Nánari lýsing:

Bil 1 (mhl 01.0101), inngöngudyr ásamt innkeyrsludyrum til norðurs.

Málað gólf, innst í rými er borð með stálvaski.

þriggja fasa rafmagn. Heitt og kalt vatn, góð lofthæð er í mest öllu rýminu.

Þaðan er innangengt í Bil 14 (mhl 01.0114) þar er rúmgóð geymsla með steinteppi á gólfi.

Þar fyrir framan er opið rými með stálvask í borði, steinteppi á gólfi.

Baðherbergi er fremst í rýminu, flísar á gólfi, handlaug, sturta og salerni.

Sameiginlegur inngangur með efri hæð er að sunnanverðu við húsið.

Mánamörk 3-5 er iðnaðar/atvinnuhúsnæði, ein hæð með millilofti, húsið skiptist í 14 eignir.

Húsið er samkvæmt HMS skráð sem verkstæði. Undirstöður og gólfplata eru úr járnbentri steinsteypu. Um er að ræða stálgrindarhús með yleiningum,

steypa+málmur byggt árið 2008. Þak er einhalla bárujárnsklætt. Malbikuð lóð í sameign er við eignina. Við hvert bil eru tvö bílastæði

Lóðin er sameiginleg 3070.3 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ. 32 bílastæði eru á lóðinni þar af eitt fyrir hreyfihamlaða.

Sérafnotafletir á lóð eru fyrir framan innkeyrsludyr séreigna, með vesturhlið hússins og suðurhlið lóðar, sjá nánar í eignarskiptayfirlýsingu.

Nánari upplýsingar veita:

Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / kristjan@helgafellfasteignasala.is

Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / knutur@helgafellfasteignasala.is----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Mánamörk 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6