HÚSASJÁ

Árakur 31

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

248 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

297 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Bílastæði

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



36 dagar á sölu

sell

204.900.000 kr

823.222 kr/m²

Viltu fasteignir kynna Árakur 31, 210 Garðabæ. Glæsilegt 5-6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr

Á sölusíðu eignarinnar getur þú nálgast sölyfirlit og önnur gögn um eignina.

Hægt að skoða með stuttum fyrirvara flesta daga. Hafið samband við Heiðrek Guðmundsson, löggiltan fasteignasala í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun.

Árakur 31 er skv HMS 248.9 m2 raðhús sem skiptast í 219,5 m2 íbúðarrými og 29,4 m2 innbyggðan bílskúr. 4-5 svefnherbergi.

Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, eldhús, stóra stofu/borðstofu, baðherbergi, geymslu/svefnherbergi og bílskúr á neðri hæð. Á efri hæð eru þvottahús, baðherbergi, tvö mjög stór svefnherbergi og hjónasvíta með sér fataherbergi. Auðvelt er að bæta við fjórða svefnherberginu á hæðinni. Frá efri hæð er fallegt útsýni yfir Arnarnesvoginn til Bessastaða. Vandaður ca 100m2 sólpallur til suðurs og heitur pottur. Húsið er vel staðsett á rólegum, vinsælum og fjölskylduvænum stað í Akrahverfinu.

Nánari lýsing

Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi og inngangi í bílskúr og geymslu sem er notuð sem herbergi. Parket á gólfi.

Geymsla: Nýtt sem herbergi í dag. Rúmgott með glugga. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtuaðstöðu og upphengdu klósetti.

Eldhús: Opið inn í miðrými hússins. Háglans svört innrétting með borðplötum úr steini. Vonduð heimilistæki úr Pininfarina línunni frá Gorenje.

Stofa / borðstofa: Björt og mjög rúmgóð með stórum gluggum. Útgengt sólpall. Parket á gólfi.

Pallur: Frá stofu er gengið á um 100m2 sólpall til suðurs. Heitur pottur og miklir mögleikar til að gera að algjörum sælureit.

Efri hæð: Úr miðrými húss er gengið um steyptan teppalagðan stiga upp á efri hæð.

Sjónvarpsherbergi: Frá stiga er komið inn í miðrými hæðar þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Góð sjónvarpsstofa/fjölskyldurými. Þessu rými er auðvelt að breyta í fjórða svefnherbergið á hæðinni. Frá herberginu er gengið út á svalir. Parket á gólfum.

Herbergi 1: Stórt og rúmgott með parketi á gólfi.

Herbergi 2: Mjög stórt og rúmgott með parketi á gólfi.

Hjónasvíta: Stór og rúmgóð með fataherbergi. Parket á gólfi. Frá hjónasvítu er úttgengt á góðar suður svalir.

Baðherbergi: Gólf og votrými flísalögð. "Labb-inn" sturtuhorn og baðkar. Upphengt salerni, tengi fyrir handklæðaofn.

Þvottahús: Rúmgott með góðri innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Ræstivaskur. Flísar á gólfi.

Bílskúr: Innangengt frá forstofu.

Bílaplan: Hellulagt bílaplan með hita.

Frábært tækifæri til að eignast fallega og mjög rúmgóða eign í fallegu umhverfi á eftirsóttu og fjölskylduvænum stað í Garðabæ.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í heidrekur@viltu.is eða í síma 8459000

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.

Allt innifalið.

Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kort af Árakur 31

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42
Árakur 31, 01-0101 | Húsasjá