HÚSASJÁ

Árakur 7

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
53 myndir

249 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

412 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



62 dagar á sölu

sell

210.000.000 kr

843.712 kr/m²

Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 7751515 með netfangið jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Stórglæsilegt endaraðhús við Árakur 7 – alls 248,9 fm með fjórum svefnherbergjum, skrifstofurými, bílskúr, tvö baðherbergi, sér þvottahús, tvennar svalir, pallur og heitum potti.

Vandað og einstaklega rúmgott endaraðhús á tveimur hæðum á frábærum stað í hinu eftirsótta Akrahverfi í Garðabæ. Eignin býður upp á mikinn sveigjanleika, en í dag eru fjögur svefnherbergi í húsinu með möguleika á því fimmta. Bakgarðurinn er afgirtur, snýr til suðurs með stórri harðviðarverönd, fallegri lýsingu og vönduðum heitum potti. Allur garðurinn var tekinn í gegn á síðustu árum og þar bætt við pott og útigeymslu.

Helstu kostir:

* Staðsetning: Endahús með góðu næði í fjölskylduvænu hverfi.

* Lúxus útisvæði: Suðurgarður með harðviðarverönd, útilýsingu og heitum potti.

* Þægindi: Upphitað hellulagt bílaplan og rúmgóður bílskúr.

* Fjölskylduvænt: 4-5 svefnherbergi, tvö baðherbergi og sér þvottahús.

Neðri hæð:

* Forstofa: Teppalögð með góðu skápaplássi.

* Svefnherbergi/Skrifstofa: Innaf forstofu er gott herbergi sem nýtist vel sem svefnherbergi, vinnuherbergi eða geymsla.

* Eldhús: Hvíttlökuð innrétting með steinborðplötum og vönduðum tækjum. Innbyggð uppþvottavél fylgir með.

* Stofur: Björt og stór stofa og borðstofa með gegnheilu parketi. Úr stofu er gengið út á glæsilega harðviðarverönd í suður með heitum potti.

* Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu.

* Bílskúr: 29,4 fm með flísalögðu gólfi, geymsluskápum og sjálfvirkum hurðaropnara. Innangengt úr forstofu.

Efri hæð:

* Hjónasvíta: Rúmgóð og björt með fataherbergi innaf. Útgengt á góðar svalir sem snúa til suðurs.

* Svefnherbergi: Tvö stór parketlögð herbergi með góðum skápum.

* Sjónvarpsstofa/Vinnurými: Einstaklega rúmgott og bjart rými (auðvelt að breyta í 5. svefnherbergið). Útgengt á norðursvalir.

* Baðherbergi: Glæsilegt, flísalagt með mosaíkflísum, bæði sturtuklefi og baðkar.

* Þvottahús: Sér þvottahús innan íbúðar með glugga og mosaíkflísum.

Lóð og aðkoma: Aðkoman er til fyrirmyndar með upphituðu, hellulögðu bílaplani. Bakgarðurinn er hannaður til útiveru með fallegri lýsingu sem skapar réttu stemninguna á kvöldin við heita pottinn.

Sýnum daglega.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Árakur 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð