HÚSASJÁ

Strandgata 64

01-0106 · 735 Eskifirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

138 m²

Stærð

3

Herbergi

1960

Byggingarár

Bílskúr



37 dagar á sölu

sell

44.900.000 kr

326.308 kr/m²

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali, s. 893-1319, thordis@lf-fasteignasala.is.kynna:

Strandgata 64, með bílskúr 735 Eskifirði.

Nánar tiltekið eign merkt 01-06, fastanúmer 229-7101 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Strandgata 64 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 229-7101, birt stærð 137.6 fm.

Um er að ræða eina af skemmtilegum íbúðum í raðhúsi sem áður var netagerð og gekk undir nafninu Bergen vegna tengsla upprunalegs eiganda við Noreg.                                                                                                                                                                                                                                    Íbúðin sem hér um ræðir er í SA enda hússins OG ER MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR.

Um er að ræða 98,6 fermetra íbúð auk 39 fermetra bílskúrs. Eignin er á 2 hæðum í húsi á sjávarkambinum á Eskifirði.

Húsið var byggt 1960 sem netaverkstæði en breytt í íbúðir fyrir nokkrum árum.                                                                                                                Gengið er inn af verönd framan við íbúðina en einnig er hægt að ganga inn í gegn um bílskúrinn.

Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum skáp þegar komið er inn af veröndinni en sé komið úr bílskúrnum er komið inn í stigahús.                          Ágætt herbergi með gólfsíðum glugga er við hlið forstofunnar, parket á gólfi og fataskápur.

Inn af forstofunni er stigi upp á efri hæðina.

Stiginn liggur upp í alrými og er eldhús öðru megin við stigann en rúmgóð stofa með dyrum út á svalir hinumegin.

Af svölunum og úr alrýminu er glæsilegu útsýni út á fjörðinn og njóta Hólmatindur og Hólmaborgir sín ekki víða betur.                                                  Á Á efri hæðinni er flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtuklefa.

Rúmgott svefnherbergi er á efri hæð íbúðarinnar.

Kort af Strandgata 64

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð