HÚSASJÁ

Efstagerði 3

01-0101 · 730 Reyðarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

145 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2006

Byggingarár

527 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



4 dagar á sölu

sell

67.900.000 kr

469.571 kr/m²

Fasteignasala Austurlands kynnir Efstagerði 3, Reyðarfirði: Um er að ræða fallegt og vel skipulagt 144,6 m² raðhús úr timbri ásamt sambyggðum bílskúr. Húsið stendur á frábærum fjölskylduvænum stað á Reyðarfirði þar sem stutt er í fallega náttúru.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Eignin skiptist upp í forstofu, gang, bjarta stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og bílskúr þar innan af. Að aftanverðu er útgengt úr stofu út á góðan sólpall.

- Glæsilegt útsýni til fjalla

- Rúmgóður sólpallur

- "Sérsmíðuð“ rennibraut í bakgarði fyrir yngstu kynslóðina

- Innangengt í bílskúr beint úr húsi

- Góð staðsetning í botnlanga

Vel skipulagt og bjart fjölskylduhús!

Forstofa: Flísalögð á gólfi með mjög stórum og rúmgóðum viðarfataskáp.

Eldhús: Falleg viðarinnrétting með miklu skápaplássi, dökkri borðplötu, bökunarofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Bjartur gluggi er í eldhúsi sem vísar út að fjöllunum. Eldhúsið er að hluta til opið inn í stofu .

Stofa/borðstofa: Mjög bjart og stórt opið rými. Ljóst parket á gólfi, stórir gluggar og útgengt er út á rúmgóðan sólpall .

Hjónaherbergi: Mjög rúmgott (13,5 m²), lagt ljósu parketi og með stórum fataskáp .

Svefnherbergin: Tvö fín barnaherbergi (9,2 m² og 9,3 m²), bæði með sama ljósa parketi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítum og gráum flísum. Ljós innrétting með viðar og hvítum skápum, baðkar og sturtuklefi .

Þvottahús/Geymsla: Fínt vinnurými, nýtist sem þvottahús og tengir saman íbúð og bílskúr .

Bílskúr: Rúmgóður og snyrtilegur bílskúr (27,8 m²) sem innangengt er í úr þvottahúsi.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Skráning eignarinnar skv. HMS:

Fasteignanúmer: F2296992

Stærð: Raðhús, 144,6 m²

Byggingarár: 2006

Byggingarefni: Timbur

Gildandi fasteignamat 2026: 54.050.000 kr.

Brunabótamat: 71.800.000 kr.

Lóð: Íbúðarhúsalóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 526,5 m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

Kort af Efstagerði 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu