HÚSASJÁ

Njarðarbraut 1

02-0104 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

357 m²

Stærð

2015

Byggingarár

6472 m²

Lóð



133 dagar á sölu

sell

141.900.000 kr

398.036 kr/m²

Gott atvinnuhúsnæði við Njarðarbraut 1, Reykjanesbæ

Eignasala.is kynnir til sölu eða leigu vel staðsett atvinnuhúsnæði við Njarðarbraut 1, 260 Reykjanesbæ — nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 229-6852, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Heildarstærð eignar samkvæmt FMR er 356,5 fm.

Helstu atriði

Tvö bil með möguleika á aðskilnaði  Gólfhiti og vélslípuð steypt botnplata  Malbikað bílastæðaplan  Rafstýrðar innkeyrsluhurðir (hæð 3,30 m / breidd 3,00 m) Þak og veggir vel einangruð  Kaffistofa með innréttingum

Nánari lýsing

Eignin samanstendur af tveimur bilum sem eru opin á milli, en unnt er að breyta skráningu í tvö aðskilin atvinnubil.

Í húsnæðinu er kaffistofa með innréttingum og plastparketi á gólfi, salerni og skolsvaskur, og allar lagnir eru utanáliggjandi.

Botnplatan er steypt og vélslípuð með gólfhita.

Burðarvirki og einangrun:

Útveggir úr forsteyptum einingum með 100 mm einangrun

Þak einangrað með 200 mm þakull

Þakklæðning úr báruáli, þakkantar klæddir með áli

Burðarsúlur úr stáli milli bilanna

Lóðin er malbikuð og á lóðarmörkum eru sameiginleg sorphirðusvæði samkvæmt teikningu.

Upplýsingar

Staðsetning: Njarðarbraut 1, Reykjanesbær

Stærð: 356,5 fm

Tegund: Atvinnuhúsnæði

Fastanúmer: 229-6852

Hafðu samband

Sími: 420 6070

Netfang: eignasala@eignasala.is

Tengiliðir: joi@eignasala.is, julli@eignasala.is

Skrifstofa: Hafnargata 90a, Reykjanesbæ

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

Kort af Njarðarbraut 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð