HÚSASJÁ

Leirdalur 18

01-0101 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
47 myndir

251 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

1193 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



262 dagar á sölu

sell

117.900.000 kr

468.974 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir Leirdal 18 í Reykjanesbæ, fallegt parhús ásamt bílskúr.

Eignin telur samtals 251,4 m2 þar af bílskúr 46,2 m2.

** Bókið skoðun í síma 866-3934 María Mjöll**

Eignin er á tveimur hæðum, á neðri hæð hússins er forstofa, eldhús í opnu rými, stofa, salerni og þvottahús. Efri hæðin hefur að geyma fjögur svefnherbergi og rúmgott baðherbergi og stofu/sjónvarpshol.

Á efri hæð er útgengi á stórar svalir.

Gólfhiti er á báðum hæðum og einnig í bílskúr.

Mjög glæsileg timburverönd með nýlegum heitum pott er við húsið, sem og hellulagt bílaplan fyrir framan hús með snjóbræðslu og stæði fyrir tvo til þrjá bíla.

Mikil lofthæð er í húsinu og er þetta virkilega góð fjölskyldueign.

Nánari lýsing eignar:

Jarðhæð:

Forstofa: Komið er inn í forstofu á jarðhæð, flísar á gólfi og góður fataskápur.

Eldhús: Er í opnu rými með fallegri sérsmíðaðri innréttingu úr mahony við frá Birninum. Tveir ofnar í innréttingunni, bakaraofn, örbylgjuofn og spanhelluborð frá Samsung.

Stofa: Harðparket á gólfi, tvö þrep eru niður í fallega setustofu/sjónvarpshol, þar er veggur  klæddur með náttúrusteini og fallegur rafmagnsarinn er í stofunni.

Salerni: Flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni og fín baðinnrétting

Þvottahús: Flísar á gólfi, hvít innrétting, þvottavél/þurrkari í vinnuhæð og þvottahússvaskur. Innangengt er úr þvottahúsinu í bílskúrinn.

Efri hæð:

Gengið er uppá efri hæðina um fallegan stiga með eikarþrepum, veggurinn við stigann er klæddur með veggjaþiljum.

Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi og fataherbergi þar innaf.

Herbergi: Þrjú barnaherbergi með harðparketi á gólfum.

Baðherbergi: Mjög rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, nuddbaðkari og sturtu.

Falleg fjölskyldueign sem vert er að skoða, vel staðsett í Reykjanesbæ, stutt bæði í skóla og leikskóla einnig er stutt út á Reykjanesbrautina.

Nánari upplýsingar um eignina veita:

María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali maria@fastborg.is, S: 866-3934

Úlfar Þór Davíðsson lögg. fasteignasali ulfar@fastborg.is  S:788-9030

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Borg fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Leirdalur 18

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47