HÚSASJÁ

Lambasel 44

01-0101 · 109 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

241 m²

Stærð

2

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2006

Byggingarár

805 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Auka íbúð



47 dagar á sölu

sell

174.900.000 kr

726.933 kr/m²

Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna Lambasel 44, Reykjavík fnr. 229-5218  - AUKAÍBÚР - Fasteignamat 2026 er 170.950.000.

Húsið er byggt árið 2006. Húsið er einbýlishús byggt úr forsteyptum einingum á tveimur hæðum. Birt stærð er 240,6 fm og er húsið skráð 204,4 fm og þar af er aukaíbúð um 40 fm en lítið mál er að opna úr sjónvarpsrými inn í aukaíbúðina.  Bílskúr er skráður 36,2 fm. Húsið stendur á stórri lóð sem er skráð 805 fm. Sjá má gólfteikningar af eigninni þar sem ljósmyndir eignarinnar eru.

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

NEÐRI HÆÐ:

Aðkoma:  Grófjöfnuð lóð með möl fyrir framan bílskúr og að inngangi í húsið.

Forstofa: Flísar á gólfi. Stór hvítur fataskápur.

Gestasnyrting: Flísar á gólfi. Skápur með handlaug. Upphengt salerni. Gluggi er í rýminu.

Þvottahús: Flísar á gólfi. Rýmið er ekki fullklárað.

Sjónvarpsrými: Parket á gólfi. - Lítið mál að opna úr sjónvarpsrými yfir í aukaíbúðina.

Eldhús: Parket á gólfi. Góð innrétting með miklu skápaplássi. Gashelluborð með háfi yfir. Tveir matreiðsluofnar. Innbyggður kæli/frystiskápur í innréttingu. Nýleg AEG innbyggð uppþvottavél. Hurð úr eldhúsi á lóð hússins.

Stofa: Parket á gólfi. Einstaklega mikil lofthæð er í rýminu. Hurð úr stofu á baklóð hússins.

AUKAÍBÚÐ: Íbúðin er með sérinngangi. Íbúðin samanstendur af forstofu, stofu/eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. íbúðin er um 40 fm og er fullbúin íbúð. Nýlegur fataskápur er í herbergi aukaíbúðarinnar.

EFRI HÆÐ:

Hjónaherbergi: Parket á gólfi. Fataherbergi inn af rýminu með hengi fyrir. Útgengt á tvennar svalir og eru aðrar þeirra mjög stórar og algjör sælureitur á góðviðrisdögum.

Barnaherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja. Nýlegir fataskápar eru í báðum barnaherbergjunum.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum við votrými. Góð innrétting með handlaug. Baðkar og sturta. Upphengt salerni. Tveir gluggar eru í rýminu.

Bílskúr: Skúrinn er skráður 36,2 fm. Heitt og kalt vatn og rafmagn. Möguleiki væri á að útbúa aðra aukaíbúð í skúrnum.

Lóð:  Lóðin er skráð 805 fm og er gróin með góðri grasflöt. Búið er að gróðursetja töluvert af trjágróðri fyrir aftan húsið á lóðinni. Grófjafnað með möl fyrir framan bílskúr og að inngangi í húsið.

Það sem hefur verið gert í húsinu síðustu árin:

2021: Sett upp rafmagnstafla í bílskúr og aukaíbúð auk þess sem aðaltafla var yfirfarin. Bætt við töluvert af ljósum.

2023: Skipt var um alla hausa í gólfhitakerfi.

2023: Skipt var um blöndunartæki í sturtum bæði í aðalíbúð og aukaíbúð.

2023: Skipt um borðplötu í eldhúsinnréttingu og vaskur og blöndunartæki endurnýjuð.

Lambasel 44 er einstaklega fallegt einbýlishús vel staðsett í nýjasta hluta Seljahverfis. Húsið er staðsett innst í botnlanga og er langt í næstu byggð fyrir aftan húsið. Aukaíbúð sem býður upp á möguleika til útleigu eða fyrir stóra fjölskyldu með uppkomin börn en lítið mál að opna á milli aukaíbúðar og neðri hæðar. Möguleiki er á að stækka gólfflöt efri hæðar um 30-40 fm þar sem mikil lofthæð er í stofunni. Þrennar svalir með fallegu útsýni.

- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -

Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða daddi@remax.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Lambasel 44

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð