Vallakór 3
01-0204 · 203 Kópavogi



9 dagar á sölu
93.900.000 kr
732.449 kr/m²
Hilmar Arnarson aðstoðarmaður fasteignasala og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali ásamt RE/MAX kynna:
Bjarta og vel skipulagða 128,2 fm 4. herbergja íbúð með sérinngangi af svalagangi á 2 hæð. í lyftuhúsi við Vallakór 1-3, 203 Kópavogi.
Eignin skiptist í forstofu, 3 mjög rúmgóð svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, í stóru og opnu rými, ásamt rúmgóðu baðherbergi og þvottahúsi innan íbúðar. Úr stofu er útgengt á 11 fm svalir með svalalokun. Íbúðinni fylgir einnig 7 fm geymsla í sameign og bílastæði í upphitaðri bílageymslu.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign í góðu íbúðarhverfi í Kópavogi. Göngufæri er i leik-og grunnskóla og flesta þjónustu eins og Krónuna og í apótek. Íþróttaaðstaða HK í Kórnum er í göngufæri og stutt er í fallegar gönguleiðir í nærumhverfinu.
Smelltu hér til að fá allar helstu upplýsingar um eignina.
* Bílastæði í upphitaðri bílageymslu.
* Mjög rúmgóð svefnherbergi.
* Fataherbergi innaf hjónaherbergi.
* Svalalokun.
* Þvottahús innan íbúðar.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson, hilmar@remax.is, sími 823-3673
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu. Skápar með rennihurðum sem ná upp í loft.
Herbergi I: Rúmgott 12.7 fm á vinstri hönd við anddyri þegar komið er inn í íbúð. Parket á gólfi.
Herbergi II: Rúmgott 11.8 fm á hægri hönd þegar komið er inn í íbúð. Parketi á gólfi. Góður fataskápur með rennihurðum.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi 17.4 fm með "Walk-in closet". Parket á gólfi, gluggi út í garð.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa og baðkari. Dökkar flísar á gólfi og hvítar veggflísar. Smekkleg innrétting með góðu skúffuplássi ásamt fallegri handlaug, Upphengt klósett.
Eldhús: Stórt og opið eldhúsrými með ljósri innréttingu ásamt barborði. Bökunarofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél. Span helluborð í barborði ásamt hangandi gufugleypi. Ljósar flísar á gólfi.
Stofa: Stór og björt stofa. Parket á gólfi. Rúmgóðar svalir út af stofu í suður þar sem búið er að setja svalalokun.
Þvottahús: Dökkar flísar á gólfi.
Geymsla: Eigninni fylgir 7 fm geymsla í sameign, en þar er einnig hjólageymsla.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson aðstoðarmaður fasteignasala hilmar@remax.is sími 823-3673 og Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

















