HÚSASJÁ

Brandshús 1

01-0101 · 803 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

166 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2006

Byggingarár

1617 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



163 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

480.457 kr/m²

VALBORG fasteignasala og ráðgjöf kynnir í einkasölu einbýlishúsið Brandshús 1, 803 Selfossi.

Fjögurra herbergja einbýlishús ásamt bílskúr, staðsett sunnnarlega í Flóanum.

Eignin er samtals 166,3 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Húsið sjálft er 129,8 m² og telur forstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi, þvottahús, geymslu og búr.

Bílskúrinn er skráður 36,5 m²  að stærð. Í honum hefur verið stúkuð af geymsla. Geymsluloft er yfir skúrnum. Innkeyrsluhurð með rafmagnsopnara.

Lóðin er skráð 1.617 m² en á henni er góður geymsluskúr með rafmagni.

Seljendur skoða skipti á 60 - 70m eign í lyftuhúsi á Selfossi.

Sjá staðsetningu hér:

Nánari upplýsingar veita:

Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.

Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.

Lýsing eignar:

Anddyri er flísalagt. Þar er fimmfaldur fataskápur.

Gangur/hol sem tengir saman flestar vistarverur hússins.

Eldhús er flísalagt, er með viðarinnréttingu, með efri og neðri skápum. Gashelluborð, vifta, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél. Rými yfir tvo kæli/frystiskápa. Gott pláss fyrir eldhúsborð.

Stofa er flísalögð. Gluggar til suðurs og vestur. Kamína í rýminu.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með handlaug, vegghengt wc og walk-in sturta. Gott skápapláss, gluggar til norðurs.

Svefnherbergi I með frístandandi fataskáp og glugga til suðurs. Flísar á gólfi.

Svefnherbergi II með frístandandi fataskáp og glugga til norðurs. Flísar á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott, með frístandandi fataskáp og glugga til norðurs. Flísar á gólfi.

Þvottahús með flísum gólfi, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur. Þar er útidyrahurð er snýr til norðurs í bakgarð. Hellulagt við húsið norðarvert en þar eru einnig þvottasnúrur og eldiviðargeymsla.

Búr er einnig til staðar. Flísar á gólfi.

Milli íbúðarrýmis og bílskúrs er tengirými. Þar er lúga upp á risloft. Flísar á gólfi.

Bílskúr með máluðu gólfi, innkeyrsludyr með rafmagnsopnara. Geymsla hefur verið stúkuð af í enda skúrsins og geymsluloft er yfir skúrnum. Útgengt úr geymslunni í bakgarð hússins.

Bílastæði eru fyrir framan bílskúr. Möl í plani.

Stór ræktuð lóð. Geymsluskúr er á lóðinni með rafmagni.

Gólfefni hússins eru flísar.

Nánari upplýsingar veita:

Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.

Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.

Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum

kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Brandshús 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32