Norðurbakki 25A
02-0102 · 220 Hafnarfirði



39 dagar á sölu
129.900.000 kr
1.011.682 kr/m²
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Einstaklega vel staðsett útsýnisíbúð á enda hússins, þar sem útsýni er óskert til sjávar og hafnar. Íbúð sem þessi kemur sjaldan í sölu!
- Allir gluggar íbúðarinnar snúa til sjávar, sem tryggir einstakt útsýni og gott náttúrulegt ljós.
- Íbúðin er á 1.hæð og er því með stórum palli í suðurátt, útfrá stofu og öðrum í vestur, útfrá hjónaherbergi.
- Íbúðin er með stæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu.
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR!
SJÁÐU FLEIRI MYNDIR OG MYNDBÖND HÉR - NORDURBAKKI.IS
Eignin samanstendur af 3 svefnherbergjum, baðherbergi með þvottahúsi, sjónvarpsholi, stofu og eldhúsi. Sér geymsla í kjallara og stæði í bílageymslu. Íbúðin er samtals 128,4 m² og þar af er geymslan 6,9 m². Stæðið er ekki inni í fermetrum.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott hol með fataskáp.
Sjónvarpsholið er í opnu rými við innganginn. Parket á gólfi.
Stofan og eldhúsið er í opnu rými með stórum gluggum á tveim hliðum. Parket á gólfi.
Eldhúsið er með viðarinnréttingu. Ofn í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél og eyja með helluborði og háf yfir.
Stór pallur sem vísar í suður og vesturátt með gullfallegt útsýni.
Hjónaherbergið er með fataskápum og útgengt út á pall með útsýni út á haf.
Herbergi 2 og 3 eru bæði með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergið er með flísum í hólf og gólf. Baðkar og sturtuklefi.
Þvottahús er innaf baðherbergi. Flísar á gólfi.
Sér geymsla er í kjallara.
Bílastæði er í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Búið er að setja upp hleðslustöð.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
































