HÚSASJÁ

Norðurbakki 9B

01-0211 · 220 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

150 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2015

Byggingarár

5068 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



172 dagar á sölu

sell

114.900.000 kr

763.963 kr/m²

RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna Norðurbakka 9B - Fnr. 229-3307

Eignin er skráð 150,4 fm 4 herbergja íbúð í fjölbýli og er skráð byggingarár 2015. Íbúðarhlutinn er skráður 131,8 fm og tvær geymslur 12,5 og 6,1 fm. Tvennar svalir eru í íbúðinni.  Einnig gott að sjá skipulag íbúðarinnar á teikningu sem er þar sem ljósmyndirnar eru af eigninni. Skipta þarf út tveimur gluggum í íbúðinni en samkomulag liggur fyrir við verktakann sem byggði húsið um frágang á því. Einnig mun verktakinn laga þak á bílageymslu.

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Aðkoma: Malbikuð stæði eru fyrir framan húsið. Mjög snyrtileg sameign í stigaganginum.

Forstofa: Flísar á gólfi. Rúmgóður fataskápur.

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á svalir úr stofu.

Eldhús: Eikarinnrétting og eyja með Miele spansuðuhelluborði og háfi yfir. Miele bakstursofn í vinnuhæð sem er bæði með hefðbundna hitum og gufuhitun til eldunnar eða baksturs. Barstólar sem eru við eyjuna geta fylgt með.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Eikarinnrétting með handlaug. Baðkar með sturtutæki og glerþili. Upphengt salerni.

Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð hvít innrétting.

Svefnherbergi: Eru þrjú talsins og er parket á gólfum þeirra allra. Fataskápar eru í öllum herbergjunum.

Bílastæði: Merkt bílastæði er í kjallara og er rafhleðslustöð við stæðið. Önnur geymslan sem fylgir íbúðinni er beint inn af bílastæði.

Geymslur: Tvær geymslur fylgja með og er önnu þeirra 12,5 fm á geymslugangi en hin er fyrir aftan bílastæði og er skráð 6,1fm.

Lóð: Sameiginleg frágengin lóð.

Norðurbakki 9B er falleg fjögurra herbergja vönduð íbúð í fallegu fjölbýlishúsi. Á þaki hússins eru svo sameiginlegar þaksvalir með fallegu útsýni til allra átta. Frábær staðsetning og stutt i skóla og leikskóla og alla þjónustu í miðbænum. Útivistarmöguleikar í göngufæri. Kaffihús og bakarí á Norðurbakkanum og stutt í verslunarmiðstöðina Fjörð.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða daddi@remax.is.

Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Norðurbakki 9B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28