Bogatún 26
01-0101 · 850 Hellu



326 dagar á sölu
64.000.000 kr
468.864 kr/m²
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
ENDARAÐHÚS MEÐ SAMBYGGÐUM BÍLSKÚR VIÐ BOGATÚN NR. 26 Á HELLU.
Húsið er byggt úr timbri árið 2006 og er klætt að utan með steniklæðningu. Stærð íbúðar er 99,3 fm og stærð geymslu og bílskúrs er 30,2 fm. Eignin telur: Anddyri með flísum á gólfi. Hol með parketi á gólfi. Stofu með parketi á gólfi og hurð út í garðinn. Eldhús með flísum á gólfi og góðri innréttingu, með eldavél, ofni og uppþvottavél. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum, skápar eru í tveimur þeirra og í hjónaherbergi er hurð út í garðinn. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, baðkeri, sturtuklefa og innréttingu. Þvottahús með ómáluðu steingólfi. Úr forstofunni er innangengt í bílskúrinn, sem er með gönguhurð og innkeyrsludyrum. Í enda hans er geymsluherbergi. Við húsið er timburverönd og hellulagt bifreiðastæði. Garðurinn er gróinn.
Þeim sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign er bent á að sveitarfélagið Rangárþing ytra býður þeim kaupendum upp á styrk á móti fasteignaskatti, samkvæmt reglum sem sjá má á heimasíðu sveitarfélagsins á þessari slóð. https://www.ry.is/is/stjornsysla/stjornkerfi/samthykktir/reglur-um-styrk-a-moti-fasteignaskatti-fyrir-fyrstu-ibudarkaupendur-i-rangarthingi-ytra
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






































