HÚSASJÁ

Tjarnargata 11

01-0201 · 245 Suðurnesjabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

123 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1944

Byggingarár

1257 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Þvottahús



171 dagar á sölu

sell

47.900.000 kr

390.383 kr/m²

Remax og Kristbjörg Inga Valsdóttir löggiltur fasteignasali kynna Tjarnargötu 11, íb 01-0201, 245 Sandgerði

Um er að ræða vel skipulagða 4 herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá 122,7 fm, þar af er 26,7 fm bílskúr.

Eignin er á fallegum stað við tjörnina Í Sandgerði og hefur gott sjávarútsýni. Fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni um óspillta náttúru.

**Góð fyrstu kaup**

**Fjárfestingartækfæri**

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGN Í 3D

Nánari lýsing:

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, herbergjang, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymsluloft og bílskúr.

Forstofa : er flísalögð. Inngengt inn í þvottahús.

Eldhús : Hvít innrétting með dökkri borðplötu. Harðparket er á gólfi.

Herbergjagangur: Er mjög rúmgóður með parketi á gólfi. Lúga er upp á geymsluloft.

Herbergi : Eru þrjú. Skápar eru í einu þeirra. Parket er á gólfi.

Stofa : er Rúmgóð og björt með parketi á gólfi.

Baðherbergi : Er flísalagt í hólf og gólf með plássgóðri sturtu. Hvít innrétting og upphengt salerni. Handklæðaofn er á vegg.

Bílskúr: Er 26,7 fm26 með hillum og glugga.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Kristbjörg Inga Valsdóttir, lgf. s: 7762924 eða á netfangið ingavalsdottir@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar) af heildarfasteignamati.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.

Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Kort af Tjarnargata 11

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð