Kaldakur 8
01-0101 · 210 Garðabæ



459 dagar á sölu
450.000.000 kr
986.842 kr/m²
Ásmundur Skeggjason kynnir frábærlega staðsett einbýlishús innst í botnlanga við opinn grænan trefil í Akrahverfinu. Húsið er mjög glæsilegt og með aukinni lofthæð. Eignin skiptist m.a. í fjögur svefnherbergi, þrjár stofur, þrjú baðherbergi, eldhús, tómstundarherbergi og bílageymslu. Arinn er í stofu. Fullfrágenginn fallegur skjólsæll garður með sólpalli og heitum potti. Sigurður Hallgrímsson hannaði húsið og Guðbjörg Magnúsdóttir sá um innanhúshönnun og er útkoman í samræmi við það, sturlað hús og allur frágangur er í hæsta gæðaflokki.
Hringdu núna og bókaðu tíma í einkaskoðun.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott anddyri, flísar, góður fataskápur.
Inngangur við hliðina á útidyrahurð fyrir fjölskyldumeðlimi, gott skápapláss, flísar.
Gestasalerni er flísalagt.
Mjög rúmgóð og björt stofa með gólfsíðum gluggum, vönduðum stórum arni, hvíttað eikarparket á gólfi.
Eldhús er með fallegri innréttingu, steinn á borði, vönduð tæki. Úr eldhúsi er hurð á grill verönd. Við eldhús er fallegt bjart fjölsyldurými með gólfsíðum gluggum nú nýtt sem sjónvarpshol, flísar á gólfi.
Herbergja álma:
Æðislegt hjónaherbergi með sér fataherbergi. Fallegt baðherbergi er inn af hjónaherbergi með salerni og walk-in sturtu. Hvíttað eikarparket og flísar á gólfum og veggjum að hluta til.
Þvottahús er með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi og innbyggðu stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gott vinnupláss og vask aðstaða. Flísar á gólfi og veggjum að hluta til.
Stofa/vinnuaðstaða er með vegg með innbyggðum hillum. Hvíttað eikarparket á gólfi.
Baðherbergi er með sérsmíðaðari innréttingu walk inn sturta og baðkar. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Þrjú rúmgóð parketlögð barnaherbergi með fataskápum.
Skjólsæll sólpall úr bæði eldhúsi og svefnherbergisgangi. Pallurinn er úr brasilískum harðvið og á pallinum er góður heitur pottur.
Neðri hæð
Gengið er niður flísalagðann stiga frá anddyri, gott skápaplássi. Flísar á gólfi.
Mjög rúmgott 60 fm tómstundarherbergi með glugga.
Inngengengt er í rúmgóðan bílskúr með góðu hilluplássi, vaskaðstöðu og epoxy á gólfi. Inn af bílskúr er vínherbergi/geymsla.
Hringdu núna og bókaðu einkaskoðun og fáðu nánari upplýsingar hjá Ásmundi Skeggjasyni asi@hofdi.is, Gsm 895 3000.-

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir







