HÚSASJÁ

Grandahvarf 1

01-0301 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

164 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

1710 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



110 dagar á sölu

sell

139.000.000 kr

846.529 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:

Um er að ræða vel skipulagða og bjarta fjögurra herbergja 164,2 fm útsýnisibúð með gluggum á þrjá vegu við Grandahvarf 1.B í Hvörfunum Kópavogi.

Íbúðin sem með sér inngangi af svölum ( dýrahald er því heimilt ) er á efstu hæð í góðu sex íbúða fjölbýli á frábærum stað ofan götu í botnlanga fyrir ofan Elliðavatn í milkilli nálægð við ósnortna náttúru.

Aukin lofthæð er í íbúðinni, innfelld lýsing í loftum, tvennar svalir, bílskúr í sér bílskúrslengju á lóðinni er með þessari íbúð og auk þess eru bílastæði framan við hús.

"Við Grandahvarf 2.A fremst í götunni er sérlega fallegur "Rómargarður" sem er vel hirtur útivistarreitur í eigu og til sameiginlegra afnota íbúðareiganda að Grandahvarf 1-8."

ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDIINGAR NOKKUÐ FLJÓTT.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:

Íbúð er 136 fm merkt 01-03-01 og bílskúr 28.2 fm, samtals 164.2 fm að stærð.

Tvennar svalir 13.4 fm til suð-austurs og 13 fm til vesturs.

Nánari upplýsingar um eign:

Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN HÉR.

Eignin skiptist í:

Sérinngangur er í íbúð af svölum, aflokaða forstofu, hol/herbergjagang, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sér geymslu innan íbúðar og bílskúr.

Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð.

Nánari lýsing á eign:

Aflokuð forstofa er með innbyggðum fataskáp og innbyggðu borði með skúffu.

Hol/herbergjagangur og af honum er gengið í önnur rými íbúðar.

Eldhús er opið inn í stofu og er nokkuð rúmgott með snyrtilegri hvítri eldhúsinnréttingu með góðum efri og neðri skápum gott skápapláss, innbyggð uppþvottavél er í innréttingu, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, góð eldunareyja með helluborði, gufugleypir  fyrir ofan eyju.

Mjög rúmgóð stofa með gluggum á tvo vegu og er stórglæsilegt útsýni til suð-austurs úr stofurými.

Borðstofa er innaf stofurými, útgengt á svalir út frá stofu sem eru rúmgóðar, djúpar og snúa í suð-austur, ægifagurt útsýni yfir Elliðavatn, Heiðmörk og í átt að Bláfjöllum.

Tvö rúmgóð svefnherbergi, hjónaherbergi með góðum fataskápum og gluggum á tvo vegu með glæsilegu útsýni til suð-austurs yfir Elliðavatn. Minna herbergið nota eigendur í dag sem sjónvarpsherbergi og er útgengt á vestur-svalir úr því herbergi, það herbergi er skápalaust.

Baðherbergi er flísalagt á veggjum og gólfi, með vegg hengdu salerni, baðinnréttingu með ágætis hirslum undir vask og veggskápum, baðkar, aflokaður sturtuklefi, handklæðaofni.

Þvottaherbergi er innaf eldhúsi og er þar tengi fyrir þvottavél, þurrkara, ágætis innrétting með skolvask. Innaf þvottaherbergi er geymsla íbúðar.

Bílskúr er rúmgóður í lengju á plani framan við húseign, rafdrifin bílskúrshurð, heitt og kalt vat í bílskúr.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Gólfefni íbúðar: Harðparket og flísar á gólfum eignar.

*Sérinngangur er í íbúð og er því dýrahald heimilt.

*Tvennar svalir, annars vegar út frá stofu með útsýni yfir Elliðavatn, Heiðmörk og Bláfjöll og hins vegar þar sem inngangurinn er.

*Forhitari er á neysluvatni hússins.

*Tröppur og stéttar við húsið eru með upphitun.

Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu, stofnbrautir og útivistarsvæði.

Mikið af frábærum göngu- og hjólaleiðum í nágrenninu. Vatnsendaskóli er í örstuttu göngufæri.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.

-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Grandahvarf 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40