HÚSASJÁ

Drekavellir 43

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

220 m²

Stærð

4

Herbergi

6

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

701 m²

Lóð

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



689 dagar á sölu

sell

139.900.000 kr

635.620 kr/m²

Virkilega fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með bílskúr og heitum potti í enda á botnlangagötu við Drekavelli 43 í Hafnarfirði.

Skemmtileg fjölskyldueign með 6 svefnherbergjum og góðum sólpalli og gott rými í kringum húsið.

Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 173 fm og bílskúr 47,1 fm, alls 220,1 fm skv. fasteignaskrá.

Seljendur skoða skipti á minni eign!!

Nánari lýsing:

Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi.

Gestasnyrting með upphengdu salerni, vaskinnréttingu og opnanlegum glugga.

Forstofuherbergi með skáp og flísum á gólfi

Sjónvarpshol sem er afar rúmgott og í tengingu við önnur rými hússins.

Hjónaherbergi með góðum skápum

Þrjú barnaherbergi með flísum á gólfi og skápum í tveimur.

Eldhús, stofa og borðstofa flæða saman í gott samverurými þar sem aukin lofthæð eignarinnar nýtur sín vel.

Eldhús með hvítri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, Ofn í vinnuhæð og mikið skápa-og vinnupláss.

Útgengt úr stofu út á stóran sólpall með heitum potti.

Þvottahús er milli íbúðarhluta og bílskúrs. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting með vaski, útgengt er úr þvottahúsi á bílaplan.

Innangengt út þvottahúsi í bílskúr sem er 47,1 fm

Bílskúr með flísum á gólfi, heitt og kalt vatn. Rafmagnsopnari og innrétting. Gott geymsluloft er yfir bílskúrnum.

Búið er að gera eitt svefnherbergi í enda bílskúrs sem er með útgengt út á sólpall.

Gólfhiti er í öllum íbúðarhlutanum.

Stór og góður sólpallur með skjólveggjum og heitum potti. Fyrir utan pall er geymsluskúr.

Hiti í stórum hluta bílaplans sem er með mynstur steypu.

Húsið er klætt að utan og er því viðhaldslítið.

Virkilega skemmtileg fjölskyldueign þar sem stutt er í skóla, leikskóla, matvöruverslanir og aðra þjónustu, stutt á tengibraut.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og  Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Drekavellir 43

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu