Grafhólar 1
01-0101 · 800 Selfossi



282 dagar á sölu
99.900.000 kr
520.855 kr/m²
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Grafhólar 1. Huggulegt, fjölskylduvænt, bjart og stórt endaraðhús með fjórum svefnherbergjum. Vel staðsett í Hólahverfi, stutt frá Sunnulækjaskóla og leikskólanum Jötunheimum.
Íbúðarhluti hússins er 156,6 fm og bílskúr er 35,2 fm. Samtals 191,8 fm.
Húsið er steníklætt timburhús byggt 2006. Rúmgóð steypt innkeyrsla. Tveir aflokaðir sólpallar og heitur pottur. Grasflöt meðfram húsgafli.
Innra skipulag: Flísalögð forstofa með fataskáp. Forstofuherbergi með fataskáp. Flísalagt forstofusalerni. Innan við forstofu er hol, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými. Harðparket á gólfi. Rúmgóð hvít eldhúsinnrétting. Stofan er björt og rúmgóð og þaðan er hurð út á sólpall. Herbergjagangur. Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Úr hjónaherbergi er hurð út á sólpall. Harðparket á gólfum. Flísalagt baðherbergi, baðkar, sturta og innrétting. Flísalagt þvottahús með innréttingu og inn af þvottahúsi er geymsla. Innangengt í bílskúr úr þvottahúsi. Steyptur veggur er milli bílskúrs og næstu íbúðar.
Mjög hentugt hús fyrir stóra fjölskyldu.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





































