Tröllakór 8
01-0307 · 203 Kópavogi



2 dagar á sölu
76.900.000 kr
751.711 kr/m²
RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð við Tröllakór 8 í Kópavogi. Íbúðin er á 3. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með lyftu. Sérinngangur af svölum. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 102,3 fm, þar af er íbúðin 91,8 fm og geymslan 10,5 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa: Þrefaldur fataskápur, flísar á gólfi.
Eldhús: Innrétting með góðu skápaplássi, efri skápar upp í loft. Eldunareyja og háfur. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt út á suðursvalir.
Hjónaherbergi: Fjórfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít baðinnrétting, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Innan íbúðar. Flísar á gólfi. Skolvaskur.
Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Parket íbúðar er nýlega endurnýjað, ásamt baðinnréttingu inn á baðherbergi. Húsfélagið fór í múrviðgerðir og málun á húsinu að utan árið 2019.
Annað:
Falleg og björt íbúð á góðum stað í Kórahverfinu. Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í leikskóla, Hörðuvallaskóla og íþróttaaðstöðuna í Kórnum. Þá eru verslanir Krónunnar og Nettó jafnframt stutt frá.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
















