Eddufell 2
03-0103 · 111 Reykjavík



847 dagar á sölu
35.000.000 kr
589.226 kr/m²
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 59,4 m2 atvinnuhúsnæði við Eddufell 2 í fallega innréttuðu rými . Um er að ræða verslunarrými í jarðhæð með aðkomu Fannarsfells-megin að suðvestur-horni með góðri aðkomu og stæði framan við verslanir sem þar eru. Alls eru 4 verslunarrými á hæðinni.
Rýmið var að hluta til endurnýjað á árunum 2003, þ.m.t. raflagnir og veitulagnir, ásamt því að settar voru fallegar ljósar innréttingar í rými og gólf flísalögð, kerfisloft, og góð lýsing, allt á vandaðan máta.
Húsnæðið skiptist í móttöku og afgreiðslu, 3 afstúkaðar starfstöðvar fyrir snyrtifræðinga, geymslu og ræstikompu, ( tengi fyrir sturtu ) kaffistofu og salerni, baðherbergi með innrétitngu. Kaffiaðstaða er útbúin ljósri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél. Öll gólf eru flísalögð með fallegum bague-ljósbrúnum flísum. Loft eru útbúin kerfislofti með innfeldum halogen-lýsingum, allt rýmið. Afgreiðsla/móttaka er með sérsmíðuðu móttöku-/afgreiðsluborði úr ljósum beiki og burstuðu stáli.
Samtals þrjár starfstöðvar eru afstúkaðar í sér-herbergi lokanlegar með rennihurðum sem eru með möttu gleri á álbrautum. Hver starfstöð fyrir sig er svo útbúin með vask og innréttingu með skápum.
Árið 2024 var hafist við nýbyggingu samtals 4 íbúðarhæðir ofaná húsið m.a. Eddufell 2, og er framkvæmdum lokið.
Staðsetningin og nærliggjandi svæði er mjög ákjósanlegt og aðlaðandi fyrir ýmsa verslun og þjónustustarfsemi. Stoppistöð er beint fyrir framan rýmin, leigubílastæði, og í nærumhverfi er matvörumarkaður, kaffishús, og ýmsar verslanir og þjónusta. Mikil fólksbyggð er í öllu næsta nágrenni, og góð bílaumferð fyrir framan rýmið vegna legu þess, og hefur því staðsetningin sérlega gott auglýsingagildi í því tilliti, auk þess að hafa sér-aðkomu Fannarsfells-megin sem gerir aðkomuna auðvelda og aðgreinir frá öðrum verslunarhlutum heildarhúsa á svæðinu.
Fellaskóli er í næsta nágrenni og steinsnar frá er svo íþrótta- og fótboltavöllur, Breiðholtslaug , Fjölbraut í Breiðholti. Staðsetningin hentar því fjölda verslunar- og þjónustufyrirtækja.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















