HÚSASJÁ

Hjallasel 4

01-0101 · 700 Egilsstöðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

184 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

579 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



11 dagar á sölu

sell

93.900.000 kr

510.604 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HJALLASEL 4, 700 Egilsstaðir.  Sex herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.

Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er byggt árið 2007, eignin skiptist í neðri hæð 88.8 m², efri hæð 64.8 m² og bílskúr 32.4 m² samtals 183.9 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar;

Neðri hæð: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, gangur/hol, stigi, geymsla undir stiga, herbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Efri hæð: Þrjú herbergi, gangur, fataherbergi og baðherbergi.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing;

Neðri hæð:

Anddyri, skóskápur innaf anddyri er gangur/hol með fatahengi, frá anddyri er innangengt í baðherbergi og þvottahús.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út á timbur verönd með skjólveggjum heitum potti og grillskýli/geymslu (vegghengdir skápar í stofu geta fylgt).

Eldhús, IKEA innrétting, eyja með helluborði og háf, möguleiki er á að sitja við eyju, skápar beggja megin. Ofn í vinnuhæð, tækjaskápur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).

Herbergi I, tveir gluggar.

Baðherbergi I, inn af anddyri flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta með tveimur gler vængjum og handklæðaofn.

Þvottahús, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, snúrur, vinnuborð með vaski, þurrkofn (sérsmíðaður), gluggi, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.

Bílskúr, milliloft, bílskúrshurð er með mótor, útgengt út í bakgarð, inntök, gólfhitakista og rafmagnstafla. Allar lagnir eru til staðar fyrir salerni og sturtu innst í bílskúrnum.

Gólfefni: Flæðandi harðparket er á öllum rýmum nema forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og bílskúr þar eru flísar. Gólfhiti er á neðri hæð hússins.

Efri hæð:

Herbergi II, hjónaherbergi með fataherbergi innaf, innrétting í fataherbergi (vegghengdir skápar í hjónaherbergi geta fylgt). Útgengt er út á svalir frá fataherbergi.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.

Herbergi IV, tveir gluggar.

Baðherbergi II, flísalagt í hólf og gólf, innrétting með tveimur handlaugum og skápar, sturta með innbyggðri hillu, upphengt salerni, handklæðaofn, gluggar.

Gólfefni: Flæðandi harðparket á öllum rýmum nema baðherbergi þar eru flísar. Ofnar eru á efri hæð hússins, nema á baðherbergi er gólfhiti.

HJALLASEL 4 er tveggja hæða einingarhús úr timbri á steyptum grunni. Húsið er klætt að utan með Viroc klæðningu. Upprunalegir gluggar og hurðar.

Hellulagt bílaplan og aðkoma að húsi, pláss fyrir þrjár bifreiðar, hiti er í stétt og bílaplani framan við húsið. Uppsett hleðslustöð fyrir rafbíla Besen 22kw, 32A  á bílskúrsvegg fylgir.

Hellulögð verönd með skjólveggjum, á verönd er heitur pottur (6-8 manna) og grillskýli, upphituð hellulögð stétt er að pottinum, grillskýli/geymsla, lóð er afgirt að hluta til.

Sorptunnuskýli er við hlið á bílskúr. Köld útigeymsla „skúr" er aftan við bílskúr.

Lóð er 578.5 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 21. október 2004, skjal nr. 426-F-001323/2004.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 228-8346. Hjallasel 4, Múlaþing.

Stærð: Íbúð 151.5 m². Bílskúr 32.4 m² Samtals 183.9 m².

Brunabótamat: 88.350.000 kr.

Fasteignamat: 81.150.000  kr.

Byggingarár: 2007..

Byggingarefni: Timbur.

Landeignanúmer 197986.  Íbúðarhúsalóð 578,5 m²

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Hjallasel 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu