Tjarnabraut 8D
01-0207 · 260 Reykjanesbæ



85 dagar á sölu
56.900.000 kr
639.326 kr/m²
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Tjarnabraut 8D, 260 Reykjanesbæ.
Um er að ræða fallega 3ja herbergja, 89 fm. íbúð á 2 hæð, á góðum stað í Njarðvík.
Íbúð merkt 207.
Eignin skiptist í anddyri, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús/geymslu og rúmgóðar svalir.
Staðsetningin er góð, í göngufæri við leik- og grunnskóla.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í flísalagða forstofu.
Svefnherbergin er tvö með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús hefur viðar innréttingu með góðum eldhústækjum og miklu skápaplássi. Parket er á gólfi.
Rúmgóð og björt stofa/borðstofa með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á rúmgóðar svalir.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og baðkar.
Þvottahús/geymsla er innan íbúðar.
Bílaplan er malbikað og gangstéttir hellulagðar, sérmerkt bílastæði fylgir eigninni, lóð umhverfis hússins er graslögð.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Staðsetningin er virkilega góð, stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug og alla helstu þjónustu.
Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt er upp á Reykjanesbrautina.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ í síma 420-4050 og á netfangið es@es.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. verðskrá.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















