HÚSASJÁ

Vindakór 8

01-0211 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

149 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

7188 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



348 dagar á sölu

sell

102.500.000 kr

688.381 kr/m²

RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna Vindakór 8, Kópavogi.

Einstaklega rúmgóð, björt og falleg 5 herbergja íbúð á 2. hæð með góðum svölum og bílastæði í lokuðum bílakjallara. Eignin er staðsett á eftirsóttum stað, í Kórahverfi Kópavogs. Íbúðin er samtals 148,9 fm að stærð, þar af eru 142 fm íbúðarrými og 6,9 fm sérgeymsla.

Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottaherbergi og baðherbergi með sturtu og baðkari. Göngufæri er í verslun, skóla og leikskóla. Frábær staðsetning þar sem stutt er í Kórinn íþróttamiðstöð HK, fallegar gönguleiðir, útivistarsvæðið við Heiðmörk og hestamannafélagið Sprett svo eitthvað sé nefnt.

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með flísum á gólfi og góðum háum fataskápum.

Eldhús: Eldhúsið er opið yfir í borðstofu. Falleg innrétting frá Axis með góðu vinnu- og skápaplássi. Bakarofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Stór eyja með helluborði tengir saman eldhús og borðstofu. Búið er að setja fallegan stein á eldhúsið og eyjuna.

Borðstofa: Borðstofa er rúmgóð og samliggjandi við eldhús. Þaðan er útgengt á góðar svalir. Parket á gólfi.

Stofa: Stofan er mjög rúmgóð og þar er auðveldlega hægt að setja upp auka svefnherbergi. Parket á gólfi.

Svefnherbergi I-III: Eru rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi og háum fataskápum.

Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með sturtu, baðkari, upphengdu salerni og handklæðaofni. Góð innrétting frá Axis með góðum skúffum undir vaskaborði. Flísalagt með dökkum flisum á gólfi og ljósum flísum á veggjum að hluta.

Þvottaherbergi: Þvottaherbergi er með vönduðum innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skúffur fyrir neðan vélar og skápar fyrir ofan og ræstiskápur til hliðar. Dökkar flísar á gólfi.

Geymsla: Sérgeymsla er í sameign og er hún 6,9 fm.

Bílastæði: Sérmerkt í lokaðri bílageymslu og er stæðið merkt B34. Búið er að setja upp rafhleðslustöð þar. Mörg ómerkt bílastæði á lóð.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðlaug Jóna lgf. s. 661-2363 eða gulla@remax.is og/eða Garðar Hólm lgf. s. 899-8811 eða gardar@remax.is

Kort af Vindakór 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð