HÚSASJÁ

Selvað 1

01-0402 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

87 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

4189 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



39 dagar á sölu

sell

71.900.000 kr

826.437 kr/m²

Betri Stofan og Jason Kristinn kynnir: Fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð með aukinni lofthæð, stæði í bílakjallara og góðu útsýni við Selvað 1 í Norðlingaholti. Eignin er skráð 87,0 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands en þar af er geymsla 7 m². Um er að ræða vel staðsetta eign þar sem stutt er í náttúruna og alla helstu þjónustu.

Eignin telur anddyri, eldhús, þaksvalir, stofu og borðsstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, sér geymslu í sameign og stæði í bílakjallara.

Nánari lýsing:

Anddyri: með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum

Stofa og borðstofa: samliggjandi bjart rými með harðparketi á gólfi og útgengi á hellulagðar þaksvalir

Eldhús: með harðparketi á gólfi, viðarinnréttingu, ný borðplata, ný tæki. Fallegt útsýni úr eldhúsglugga

Herbergi 1: bjart og rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum

Herbergi 2: með harðparketi á gólfi. Herbergið er skráð sem vinnuherbergi á teikningum og hefur verið stækkað frá upprunalegri teikningu og nýtist því ágætlega.

Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf með rúmgóðri innréttingu, baðkari með sturtu og handklæðaofni

Þvottahús: með flísum á gólfi, vaski og hillum

Þaksvalir: eru 16,7 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands en þær eru hellulagðar og með góðu útsýni

Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla.

Sér bílastæði er í lokaðri bílageymslu

Nýlegar framkvæmdir:

2021: Stigangar málaðir og teppalagt

Skipt um ljós í bílakjallara

2022: Háþrýstiþvegið og sílanborið að utan. Gluggar málaðir að utan.

2023: Lagt rafmagn fyrir bílahleðslustöðvar í kjallara, Bílastæði úti og inni málað

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Selvað 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu