HÚSASJÁ

Vindakór 16

01-0201 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

161 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

4111 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



268 dagar á sölu

sell

112.900.000 kr

699.938 kr/m²

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Snyrtilega, vel staðsetta og bjarta fjölskylduvæna eign í lyftuhúsi á besta stað í Kórnum Kópavogi ásamt 32 fm bílskúr.

Fallegt útsýni er frá eign að nærumhverfi og til fjalla.

Göngu/hjólaleiðir, Elliðavatn, skólar, Kórinn og verslun í göngufæri.

Lýsing eignar:

Komið er inn í snyrtilega bjarta sameign. Mynddyrasímar eru í húsi og teppi endurnýjuð 2025 á stigagangi.

Forstofa rúmgóð parketlögð og með fataskápum.

Svefnherbergi I innangengt frá forstofu, parketlagt og með skáp.

Frá forstofu er komið inn á parketlagðan gang þar sem er baðherbergi, svefnherbergi, hjónaherbergi og þvottahús.

Baðherbergi flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, upphengt salerni, baðkar og innangengt í flísalagða sér sturtu.

Baðinnrétting með skúffum er mjög rúmgóð ásamt baðskápum á vegg við hliðina. Handlaug í borði og lýsing fyrir ofan.

Svefnherbergi II parketlagt og með fataskáp.

Hjónaherbergi í enda gangs rúmgott bjart og parketlagt og með fataskápum.

Eldhús einkar rúmgott og opið. Viðarinnrétting, efri skápar og neðri skápar og skúffur ásamt ofni í vinnuhæð. Helluborð, háfur og gott borðpláss.

Borðstofa/stofa parketlagt opið rými með útgengi að suðursvölum. Fallegt útsýni að nærumhverfi og til fjalla og að sameiginlegum garði húsa.

Þvottahús er innan íbúðar, flísalagt gólf, vaskur og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skúffur undir vélum og skápar fyrir ofan ásamt borðplássi, hillum og skápum fyrir ofan vask.

Geymsla íbúðar er á hægri hönd frá forstofu.

Bílskúr 32 fm samkvæmt fasteignayfirliti. Sjálfvirkur bílskúrshurðaopnari. Vaskur og niðurfall í bílskúr.

Á jarðhæð er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Sameiginleg bílastæði við hús.

Húsið Sílanborið 2020/21

Gluggar málaðir að utan 2020/2021

Hluti af gluggum yfirfarnir 2025

Skipt um teppi í sameign 2025

Hleðslustöðvar 2025

Einkar snyrtileg eign á besta stað í Kópavogi þar sem stutt er í náttúru og alla helstu þjónustu og afþreyingu.

Sjón er sögu ríkari.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is

Bókið skoðun á bjorgkristin@101.is eða í síma 771-5501.

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.

1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-

2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.

Kort af Vindakór 16

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29