HÚSASJÁ

Brekkugata 36

01-0701 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

211 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2006

Byggingarár

5315 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



151 dagar á sölu

sell

176.000.000 kr

835.311 kr/m²

Eignaver 460-6060

Brekkugata 36 íbúð 701 Akureyri.

Sérlega glæsileg 5 herbergja íbúð á 7.hæð ( efstu ) á einstökum útsýnisstað.  Íbúðin er samtals 210,7 fm., en að auki eru tvennar yfirbyggðar svalir, 12,8 fm. og 10,6 fm.. Fjórar sérgeymslur og tvö stæði í bílakjallara fylgja íbúðinni.

Íbúðin skiptist þannig að komið er inn í anddyri, þaðan er annarsvegar gengið inn á svefnherbergisgang með tveimur rúmgóðum herbergjum og einu baðherbergi, hinsvegar er gengið inn í stórt alrými með stofu og borðstofu ásamt eldhúsi. Þar er útgengi á stórar yfirbyggðar svalir til vesturs.

Úr eldhúsi er gengið inn í vinnurými þar sem er í dag fullbúið vinnueldhús. Frá eldhúsi er gengið inn á annan svefnherbergisgang, þar eru tvö svefnherbergi, annað er í dag nýtt sem fataherbergi og er við hliðina á hjónaherberginu. Úr hjónaherbergi er gengið út á yfirbyggðar svalir. Á ganginum er einnig stórt baðherbergi og þvottahús.

Nánari lýsing:

Forstofa, flísar á gólfi og stórir eikar fataskápar.

Svefnherbergisgangur, flísar á gólfi.

Svefnherbergi á þessum gangi eru tvö, bæði með flísum á gólfi og fataskápum úr eik.

Baðherbergið er rúmgott, flísar á gólfi og á veggjum nánast upp í loft. Vönduð sérsmíðuð eikarinnrétting með grantít borðplötum,"walk in" sturta og upphengt WC.

Stofur eru stórar og bjartar, flísar á gólfi, einstakt útsýni úr stofu!

Svefnherbergisgangur númer tvö, flísar á gólfi.

Þvottahúsið, flísar á gólfi, skolvaskur, mjög vönduð og góð innrétting og mikið skápapláss, þakgluggi.

Hjónaherbergið er stórt með glæsilegu útsýni út Eyjafjörðinn, flísar á gólfi og útgengi út á yfirbyggðar svalir.

Svefnherbergi/fataherbergi, þar eru flísar á gólfi.

Baðherbergi, eikarinnrétting, baðkar og sturta og vegghengt wc, granít borðplata. Þakgluggi.

Eldhúsinnréttingin er vönduð sérsmíðuð eikarinnrétting, granít borðplata og gas helluborð, flísar á gólfi.

Vinnueldhús, eikarinnrétting, góður háfur með loftun út, gas helluborð og gott vinnupláss. Þakgluggi.

Yfirbyggðar svalir, flísar á gólfi og kamína er á stærri svölunum.

Annað:

- Allar innihurðir eru úr eik og eru hærri en staðlaðar innihurðir.

- Þriggja metra lofthæð er í íbúð.

- Gólfhiti er í öllum gólfum íbúðar.

- Sólstopp er í gluggum í stofu.

- Granít sólbekkir í gluggum.

- Hljóðdempandi plötur í lofti í alrými og á göngum.

- Fjórar sérgeymslur fylgja þessari íbúð og eru þær í kjallara hússins.

- Vandaðar innréttingar og gólfefni.

- Tvö stæði í bílgeymslu fylgja með.

- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

- Frábær staðsetning.

- Íbúðin er til afhendingar fyrir áramót 2025/2026

Mjög vönduð og falleg eign á efstu hæð í góðu fjölbýli á góðum útsýnisstað á Akureyri

- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.

Nánari upplýsingar veita:

Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is

Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is

Begga            s: 845-0671   / begga@eignaver.is

Kort af Brekkugata 36

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22