HÚSASJÁ

Nesbraut 10

01-0101 · 730 Reyðarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
2 myndir

794 m²

Stærð

2005

Byggingarár

2086 m²

Lóð



349 dagar á sölu

sell

165.000.000 kr

207.861 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NESBRAUT 10, 730 Reyðarfjörður. Atvinnuhúsnæði miðsvæðis á Reyðarfirði.

Bókaðu skoðun hjá BYR fasteignasölu | 483-5800 | byr@byrfasteignasala.is

Eignin stendur á iðnaðar- og athafnalóð miðsvæðis í þjónustukjarna á Reyðarfirði. Húsið er byggt árið 2005. Húsnæðið er skráð 793.8 m² að stærð fasteignayfirliti HMS.

Húsið er stálgrindarhús á steyptum undirstöðum og staðsteypt botnplata. Útveggir eru PIR stáleiningar, klæddir með lóðrétti silfurgrárri málmklæðningu.

Þak er uppbyggt á stálása, einangrað og klætt með læstri stálklæðningu. Álgluggar og hurðir. Innkeyrsluhurðar eru samtals sex og eru misjafnlega háar, þær hæðstu eru 4,20 metrar á hæð, allar hurðarnar eru með mótor.

Malbikað bílaplan er hringinn í kringum húsið. Gert er ráð fyrir 12 bílastæðum á lóð, eða eitt fyrir hverja 50 m² samkvæmt byggingalýsingu.

Útisvæði er rúmgott og mikið pláss til að snúa stórum tækjum og einnig koma fyrir bílastæðum.

Lóðin er 2086,3 m² iðnaðar og athafnalóð í eigu Fjarðabyggðar. Lóðarleigusamningur er til 50 ára frá 18. ágúst 2005.

Húsið er notað í dag sem verkstæði, skrifstofur og lítil verslun. Mögulegt er að taka við leigusamningum um ákveðin rými sem eru nú þegar í útleigu.

Gólf verkstæða og viðbyggingar er steypt með gólfhita. Þriggja fasa rafmagn. Salernisaðstaða, með flísum á gólfi, með wc og handlaug, ásamt skiptiaðstöðu fyrir starfsfólk. Á skrifstofu og í verslun er parket á gólfi. Skv. byggingalýsingu er skrifstofan sér brunahólf og er einangrað að innan með 5cm steinull ásamt tvöföldu gifsi. Húsið er allt á einni hæð, með allt að 6,34 m lofthæð, og búið er að koma upp millilofti/geymslulofti í matshluta 01-01. Brunaveggur á milli matshluta 01-01 og 01-03 hefur verið opnaður að hlutatil, þar sem gengið er inn í viðbygginguna.

Þakgluggar eru við mæni hússins og eykur þar með dagsbirtu í alrými (verkstæðishluta).

Staðsetning hússins er góð, þar sem húsið stendur miðsvæðis við fjölfarna þjónustugötu á Reyðarfirði.

Útleigumöguleikar hússins eru því góðir, hvort sem er fyrir verslun, verkstæði eða aðra þjónustu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Nesbraut 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð