Vesturbrú 1
01-0307 · 210 Garðabæ



25 dagar á sölu
179.900.000 kr
990.094 kr/m²
Mjög falleg og vönduð 5-6 herbergja 181,7 fm íbúð á 3.og 4.hæð í góðu lyftuhúsi ásamt bílastæði í bílageymslu.
Bókið einkaskoðun - geir@husasalan.is
Á 3.hæð er forstofugangur, herbergi, stofa með suðursvölum og stiga upp á 4.hæð, eldhús með borðstofu, baðherbergi og hjónaherbergi með klæðaherbergi.
Á 4.hæð er stór sjónvarpsstofa með suður-svölum, baðherbergi og tvö stór herbergi.
3.hæð: Forstofugangur: Parket og stór fataskápur. Herbergi: Parket og fataskápur. Stofa: Parket og flísalagðar suður-svalir, við stofu er stigi upp á 4.hæðina. Eldhús og borðstofa: Gólfflísar, stórt eldhús með eyju í innréttingu, steinn í borðplötum, gashelluborð, háfur, veggofn, örbylgjuofn, flísalagt milli skápa og innfelld lýsing í innréttingu. Þvottaherbergi: Gólfflísar og skolvaskur. Baðherbergi: Flísalagt, baðkar, sturtuklefi, vegghengt salerni, baðinnrétting með innfelldri lýsingu og handklæðaofn. Hjónaherbergi: Parketlagt með litlu parketlögðu fataherbergi.
4.hæð: Sjónvarpsstofa: Parket, Innfelld lýsing, suður-svalir. Baðherbergi: Flísalagt, sturtuklefi, vegghengt salerni og lítill skápur við vask. Herbergi: Parket og fataskápur. Herbergi: Parket og fataskápur.
Kjallari: Bílastæði í bílageymslu merkt B-26 með hleðslustöð. Geymsla íbúðarinnar er við bílastæðið í bílageymslu. Geymsla íbúðarinnar er merkt hjá HMS 0012. Hjóla og vagnageymsla er á 1.hæð.
Gullfalleg og vel staðsett eign við sjávarsíðuna í Sjálandshverfinu. Mikil lofthæð er í eigninni og er gólfhiti í allri íbúðinni. Frábær staðsetningin skammt frá skólum og Jónshúsi félagsmiðstöð eldri borgara. Í nágrenninu er falleg sand-strönd með sturtu og búningsaðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali, s: 655-9000, netfang: geir@husasalan.is.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





















