HÚSASJÁ

Línakur 1

01-0102 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

122 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

4099 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



25 dagar á sölu

sell

109.700.000 kr

900.657 kr/m²

***NÝTT Á SKRÁ***

*** SÖLUSÝNING: LÍNAKUR 1 ÍBÚÐ 102, LAUGARDAGINN 14. FEBRÚAR 2026 KL 14:00-14:30. JÓHANNA KRISTÍN GÚSTAVSDÓTTIR, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI VERÐUR Á STAÐNUM OG VEITIR NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA: 6989470 EÐA EMAIL: JOHANNA@HUSASKJOL.IS ***

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR Línakur 1 Íbúð 102.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.

EF ÞÚ BÓKAR ÞIG FÆRÐU TILKYNNINGU EF SÖLUSÝNING FELLUR NIÐUR.

IF YOU BOOK A SHOWING, YOU WILL BE NOTIFIED IF IT’S CANCELLED.

Húsakjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og vel skipulagða 4ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi og mjög rúmgóðum afgirtum timpurpalli sem snýr í suður í vinsæluhverfi í Akralandinu við Línakur 1a í Garðabænum. Íbúðin er töluvert endurnýjuð og búið er að skipta um parket, endurnýja innréttingu í þvottahúsi og skipta um allar innihurðar í íbúðinni. 

Íbúðin er skráð 121,8 fm að stærð og þar af er geymsla í sameign 8 fm að stærð. Eignin skiptist í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu sem er eitt opið rými, sér þvottahús innan íbúðar. Sér geymsla er í sameign.   

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

Nánari lýsing á eign:

Gólfefni íbúðarinnar eru eikarparket og flísar. 

Forstofa: Rúmgóð með nýlegum góðum fataskápum úr eik sem ná upp í loft. 

Eldhús/stofa/borðstofa: Er opið og bjart alrými með útgengi úr stofu út á um 17 fm timburverönd sem snýr í suður og er afgirt með skjólveggjum. Eldhúsinnréttingin er úr eik með efri og neðri skápum og eyju. Endurnýjuð eldhústæki, spanhelluborð, ofn í vinnuhæð og háfur yfir eyju. 

Hjónaherbergi: Fallegt og rúmgott með góðum fataskápum úr eik sem ná upp í loft.  

Barnaherbergin eru 2: Bæði með rúmgóðum tvöföldum fataskápum úr eik sem ná  upp í loft. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, innrétting úr eik, sturtuklefi, baðkar og upphengt salerni.  

Þvottahús: Þvottahús er með nýlegri hvítri innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð og mjög góðu skápaplássi.

Geymsla: Rúmgóð geymsla er í sameign sem er 8,0 fm að stærð. 

Sameign: Hjóla-og vagnageymsla.

Hér er um að ræða fallega og fjölskylduvæna 4ja herbergja búð á fyrstu hæð með sér inngangi og rúmgóðum afgirtum timburpalli sem snýr í suður í vinsælu hverfi í Akralandinu í Garðabænum. Leik-og grunnskóli er í næsta nágrenni ásamt matvöruvöruverslun og bakaríi. 

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat

Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram

Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja

Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Kort af Línakur 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36