HÚSASJÁ

Hestavað 3

01-0205 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
42 myndir

117 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

3371 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



25 dagar á sölu

sell

85.900.000 kr

732.310 kr/m²

Trausti fasteignasala og Mirabela Aurelia Blaga löggiltur fasteignasali,  kynna eignina Hestavað 3, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-05, fastanúmer 228-3817 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Birt stærð eignar er 117,3 fm og skiptist hún í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, þvottahús, sérgeymslu í sameign auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.

Nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti.is.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa er flísalögð með fataskáp.

Stofa og eldhús eru í opnu og rúmgóðu rými. Eldhús er með fallegri innréttingu, eyju með helluborði og háfi, auk góðs borð- og geymslupláss. Parket er á gólfi og útgengt er á skjólgóðar svalir.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.

Þvottahús er innan íbúðar og er með hillum, borðplötu með vaski og flísum á gólfi.

Baðherbergi er með baðkari og sturtu, snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísalögðum veggjum og gólfi.

Bílastæði er í lokaðri bílageymslu og er gott aðgengi í stæðið.Búið er að leggja rafmagn fyrir bílahleðslustöð fyrir hvert bílastæði í bílakjallaranum.  Aðstaða er til að þvo bíla í bílageymslu.

Geymsla íbúðarinnar er í sameign í kjallara.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign

Húsið var múrað og málað árið 2021.

Stigagangs svalir á öllum hæðum voru múraðar árið 2024.

Nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Hestavað 3

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu