HÚSASJÁ

Hallakur 2A

01-0302 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

116 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

3795 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



55 dagar á sölu

sell

86.900.000 kr

747.849 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð og efstu hæð við Hallakur 2a. Frábært útsýni. Eignin er samtals 116,20 fm og íbúðin er 102,4 fm af þeirri stærð auk 13,8 fm geymslu.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu/borðstofu í alrými, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Stofa og eldhús sem gengur í gegnum íbúðina. Svalur til vesturs með glæsilegu útsýni.

***Smelltu hér fyrir söluyfirlit***

Nánari lýsing:

Forstofa, eikarparket á gólfi og rúmgóður skápur.

Eldhús er opið inn í stofu með eikarparketi á gólfi. Viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Bakaraofn og helluborð. Uppþvottavél og ísskápur fylgir. Góð borðaðstaða er í eldhúsi.

Stofan er björt og falleg með eikarparketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar og skjólsælar svalir með góðu útsýni til vesturs.

Svefngangur er parketlagður.

Hjónaherbergið er rúmgott með eikarparketi á gólfi og skápum með góðu skápaplássi.

Herbergi II er rúmgott með eikarparketi á gólfi og skápum.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfi. Baðkar og sturta. Upphengt klósett. Innrétting með góðu skápaplássi. Gluggi.

Þvottahús er með flísum á gólfi, hita í gólfi og glugga.

Sameign: Í sameign er sér geymsla sem tilheyrir íbúðinni og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Sameign hússins er mjög snyrtileg. Húsið að utan er klætt með áli og því viðhaldslítið. Gluggar eru ál/tré.

Hér er um að ræða virkilega fallega eign í hinu vinsæla Akrahverfi í Garðabæ. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Matvöruverslunin Krónan er í göngufæri. Eign sem vert er að skoða.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, á rólegum stað. Stutt er í skóla, leikskóla og menntaskóla. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu.

Nánari upplýsingar veita :

Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

Alfreð Valencia aðstoðarmaður fasteignasala í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Hallakur 2A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð